Almanak Ólafs S. Thorgeirssonar - 01.01.1914, Blaðsíða 135
almanak 1914.
125
Fensalir og fjelagiö Fensalafjelag. Fjelagiö var löggilt og
samin aukalög fyrir það. Þetta bætti fyrst um sinn úr bráð-
ustu þörfum á samkomuhúss-vöntuninni, en smámsaman sáu
menn, að húsrými vantaði meira, en fjárhagur fjelagsins
hefir enn ekki leyft að byggja stærra. I stjórnarnefnd fje-
lagsins sitja nú: G. Stephensson, H. Tr. Christinsson, Jón
Hillman, H. Eiríksson, S. Kristjánsson. Skrifari og fjehirð-
ir: A. J. Christvinsson.
Ritaö I maf 1913.
io. Bindindisfjelag.
Áfengisnautn, eða ofdrykkja. hefir aldrei náð föstum
tökum á þessari byggð, því þótt sumir hinna eldri manna
hafi endur og sinnum tekið sjer kollu við viss tækifæri, án
þess að sinna þvi meir en góðu hófi gegndi nje láta þaö
trufla nauðsynlega umhyggju og starfsemi. getur ekki talizt
drykkjuskapur.
En nær tímar liðu, og yngri kynslóðin þroskaðist, þótti
einlægum bindindisvinum nauðsyn til bera, að mynda bind-
indisfjelag; var það einkum I’orsteinn Jónathansson, sem
beitti sjer fyrir það málefni; var hann hinn mesti bindindis-
frömuður: að því ráði snerist þegar með honum stór hluti
yngri kynslóðarinnar. Fyrir Eorsteins umsýslu var bindind-
isstúkan “Fjallkonan” No. 14 af alþjóðareglu Good Templ-
ara, stofnuð á fundi að Markerville 29. maí 1904 af G. S.
Grímssyni, í umboði stórstúku Norðvesturlandsins.
Var Grímur ótrauður bindindismaður og vann mikið í þarfir
stúkunnar; stofnskrármeðlimir voru 31, og fjölguðu fyrst
um sinn árlega. Fyrst starfaði stúkan á íslenzkum grund-
velli og taldi aðeins íslenzka meðlimi; en eigi löngu seinna
íjekk stúkan þann fleig í höfuðið, að breyta til og láta fundi
°g önnur störf fjelagsins fram fara á enskri tungu og veita
tun leið öllum aðgang að henni, hverrar þjóðar sem væru, og
starfaði stúkan eftir það á þeim grundvelli. Meðlimir urðtt
flestir 65, en við árslok 1910, voru meðlimir aðeins 30.
Umboðsmenn stúkunnar voru þessir íslendingar: Þor-
steinn Jónathansson, Guðm. Þorláksson og Aðaljón Krist-
vmsson. HJðstu templarar hafa veriö: Guðm. Þorláksson,