Almanak Ólafs S. Thorgeirssonar - 01.01.1914, Blaðsíða 76
66
ÓLAFUR S. THORGEIRSSON 1
og býr þar enn, og hafa synir lians 3, þeir er eftir lifa, numiS
land umhverfis hann. Um tima flutti Jón sig til stundardvalar
vestur yfir vatn til Kinosota; gjöröi hann þaö til aS geta
látið börn sín ganga á skóla um stund, því hér var þá enginn
skóli. Synir Jóns tveir, Stefán og Metúsalem, og dóttir
þeirra hjónanna, Ragnhildur, hafa alt af veriö í fööurgarði
og stundaö búskap í félagi viö foreldra sína; þó hefir Stefán
á síöari árum verið allmikiö aö heiman, bæöi unnið viö tré-
smíöar, því hann er smiður góöur sem faöir hans, og næstliöiö
ár var hann verzlunarstjóri viö verzlun Armstrong Trading
Go.s viö Moose Horn Siding; en er nú komi'nn heim, er þetta
er ritað. Metúsalem hefir alt af stundaö búið með föður
sínum og fiskiveiöi á vetrum. Önnur dóttir Jóns og Stefaníu,
Aðalbjörg, er saumakona; hefir lengst um dvalið í Banda-
ríkjum fMinneapolisJ, en er nú flutt vestur að hafi. og er
heimili hennar i Séattle, Wash. — Öll hafa þau systkin góða
greind, eins og þau eiga kyn til. Ætti eg að segja eitthvert
einkenni, sem fremur öðru einkendi þessi gömlu heiðurshjón
og börn jieirra, mundi eg telja ]5að, að hvenær sem einhver i
nánd við þau þarf hjálpar í alvarlegum vandræðum, má hann
telja sér eins vísa hjálp "Mathews-fólksins”, eins og hann
gæti sjájfur veitt sér hana, og vandræðin eru þannig, að úr
sé hægt að bæta; og sjaldan mun borgun tekin fyrir það. Það
er gamalt og gott íslenzkt einkenni, sem haldist hefir vel í
þessari ætt.
Jón Mathews er nú á fyrsta ári yfir sjötugt, og her ellina
og hvitar hærur vel. Hann er starfsmaður með afbrigöum
og hefir alt að |)essu slegið alt það hey, er hann hefir þurft.
Hann og synir hans, Stefán og Methúsalem, eiga nú 6 lönd
hér í bygðinni. Þeir höföu um eitt skeið eitt hið stærsta
gripabú er liér var. Þeir hafa bygt vandað hús og stórt á
landi Jóns, eins og vönduð hús eru í bæjum, með miðstöðvar-
hitun. Jón er smiöur góöur; lærði liann trésmíði hjá J. Chr.
Stephanssyni á Akureyri. — Hann hefir góða greind, og les
alt það er hann nær í um ísland og hag þess. Hann og kona
hans hafa sýnt þrautseigju og dugnað í frumbyggja-raunun-
um- hér, sem margar og miklar hafa verið, Fáir rnunu þeir