Eimreiðin


Eimreiðin - 01.01.1933, Page 22

Eimreiðin - 01.01.1933, Page 22
2 INNGANGSORÐ EIMREIÐIN Werkefni landsins beztu blaðamanna hlýtur að verða það fyrst og fremst á næstu árum að draga stjórnmálaviðskiftin upp úr því feni, sem þau eru fallin í, gera stjórnmála- og þjóðmálagreinarnar að því, sem þær eiga að vera: veiga- mikilli, rökfastri sðkn eða vörn fyrir málstað, sem flytjanda er heilagur, og þannig fluttri, að snild og háttprýði einkenni framsetningu, drengskapur alla framkomu gagnvart and- stæðingi, en vitsmunir stjórni tillögum öllum. Þetta tímarit hefur löngum talið það eitt af höfuðverkefn- um sínum að flytja fræðandi ritgerðir um þjóðfélagsmál og stjórnmál frá sem flestum hliðum, meðal annars í kappræðu- formi, þar sem fulltrúar frá ólíkustu stefnum mættust á jöfn- um vettvangi, til að sækja og verja sinn málstað með rökum (sbr. t. d. stjórnmálagreinar „Eimreiðarinnar“ 1926). Þjóð- málaritgerðir hafa birzt hér eftir meira og minna þekta höf- unda. Þær hafa verið eftir menn úr öllum flokkum og eftir utanflokkamenn. Tilgangurinn hefur fyrst og fremst verið sá, að afla lesendunum fróðleiks á þessu sviði sem öðrum, svo að sjálfstætt hugsandi menn gætu síðan valið og hafnað eftir vild. En þar sem ég hef orðið þess var, að sumir flokksblaða- ritstjórarnir hafa verið að velta vöngum yfir greinum þeim, sem „Eimreiðin“ hefur flutt um þjóðmál, og furða sig, að því er virðist, á því, að hún skuli birta þjóðmálaritgerðir, þá er rétt að taka þetta fram um afstöðu ritsins sjálfs, til þess að koma í veg fyrir frekari undrun hinna viðkvæmu ritstjóra: í grein minni 1925 „Eimreiðin þrítug“ (XXXI. árg., 1. h) gat ég þess, að framvegis myndi „Eimreiðin“ víkja öðru hvoru að ýmsum þeim málum, „sem efst eru á baugi með þjóðinni, eins og þau horfa við frá hennar bæjardyrum séð. fiún mun þó ekki gerast málsvari neins sérstaks stjórnmálaflokks fremur en verið hefur“. Þessari stefnu hefur verið fylgt síðan. fiún fylgir engum þeirra fjögurra stjórnmálaflokka, sem nú eru uppi í landinu. Hún er óháð tímant, en þar fyrir er ekki, og hefur aldrei verið gefið í skyn, að hér verði gengið þegjandi fram hjá þeim málum, sem til stjórnmá/a og þjóðfélagsmála teljast. Og það má bæta því við, að hvorki hefur hún heitið hlut- Ieysi nokkrum flokki, manni né málefni, svo ekki þarf þess vegna að reka upp undrunaróp, þó að einhverjir kunni að verða „örir á skoðanir sínar“ öðru hvoru hér í ritinu. Sveinn Sigurðsson.
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108
Page 109
Page 110
Page 111
Page 112
Page 113
Page 114
Page 115
Page 116
Page 117
Page 118
Page 119
Page 120
Page 121
Page 122
Page 123
Page 124
Page 125
Page 126
Page 127
Page 128
Page 129
Page 130
Page 131
Page 132
Page 133
Page 134
Page 135
Page 136
Page 137
Page 138
Page 139
Page 140
Page 141
Page 142
Page 143
Page 144
Page 145
Page 146
Page 147
Page 148
Page 149
Page 150
Page 151
Page 152

x

Eimreiðin

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Eimreiðin
https://timarit.is/publication/229

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.