Árbók Háskóla Íslands

Årgang

Árbók Háskóla Íslands - 02.02.1923, Side 5

Árbók Háskóla Íslands - 02.02.1923, Side 5
FORMÁLI. Völuspá er eitt þeirra verka, sem hver íslenzkur ritskýrandi verður fj'r eða síðar að glima við. Hún er, eins og Sonatorrek, tslendingabók, Heimskringla, Njála, Lilja, Passiusálmarnir o. s. frv., meðal hátinda íslenzkrar menningar. Enginn faer útsýn og yfirlit yfir menningu vora, nema hann mæli hana af þeim tindum. Við þetta bætist, að Völuspá er allra þessara verka torskildust. Sá sem vill kosta afls síns og mátt- ar ritskýringarinnar og finna, hver takmörk hvorutveggja eru sett, getur ekki fundið hentugra viðfangsefni. Fyrstu drögunum til þessarar útgáfu hef ég því safnað fyrir löngu, og handa sjálfum mér einungis. En ég hef ráðist í að fylla þessi drög og gert úr þeim bók handa íslenzkri alþýðu. Eftir þeim tilgangi vil ég láta dæma þetta rit. Eg hef ekki vegna þeirra lesenda slakað neinsstaðar til um vísinda- lega nákvæmni, þar sem mér þótti nokkru máli skifta. En ég hef reynt að gera bókina eins Ijósa og læsilega og efnið leyfði. Fylgirit Arbókar Háskólans eiga að vera einn helzti þátturinn í háskólafræðslu vorri fyrir almenning (University extension). Pau eiga smámsaman að flytja hið algildasta af háskólafræðunum heim á bóndans bæ — viðfangsefni, sem eru nógu torveld til þess að honum vaxi brekkumegin við lestur- inn, en í þeim búningi, að hvergi sé ókleift að skilja. Pessari útgáfu er m. a. ætlað að brýna fyrir mönnum listina að lesa, benda á, hve margar geti verið tálgryfjurnar — og matarholurnar. Pvi hirði ég ekki um, þótt skýringarnar þyki stundum smásmugular. Fæsta, sem bókina lesa, mun óra fyrir, hversu miklu ég hef orðið að sleppa af efniviði þeim, sem saman var dreginn. Einbversstaðar varð t. d. að setja goðafræð- inni takmörk, því að Völuspá kemur þar við flest aðalatriði. Eins var um skoðanir og skýringar, sem mér þóttu fjarri öllum sanni. Þó er drepið á nógu mörg deiluatriði og sundurleitar skýringar til þess, að enginn lesandi gangi þess dulinn, hve margt er efa orpið um kvæðið. Fræðimennina hef ég siður haft í huga. Samt ætlast ég til, að út- gáfan geti orðið leiðarvísir fyrir stúdenta. Sjálfur hef ég fundið sárt til þess, hve miklum örðugleikum var bundið að fá yfirlit yfir hinar tvístruðu rannsóknir um þetta höfuðkvæði, og hvar skilningi manna á því var komið, Til leiðbeiningar stúdentum hef ég haft tilvitnanirnar
Side 1
Side 2
Side 3
Side 4
Side 5
Side 6
Side 7
Side 8
Side 9
Side 10
Side 11
Side 12
Side 13
Side 14
Side 15
Side 16
Side 17
Side 18
Side 19
Side 20
Side 21
Side 22
Side 23
Side 24
Side 25
Side 26
Side 27
Side 28
Side 29
Side 30
Side 31
Side 32
Side 33
Side 34
Side 35
Side 36
Side 37
Side 38
Side 39
Side 40
Side 41
Side 42
Side 43
Side 44
Side 45
Side 46
Side 47
Side 48
Side 49
Side 50
Side 51
Side 52
Side 53
Side 54
Side 55
Side 56
Side 57
Side 58
Side 59
Side 60
Side 61
Side 62
Side 63
Side 64
Side 65
Side 66
Side 67
Side 68
Side 69
Side 70
Side 71
Side 72
Side 73
Side 74
Side 75
Side 76
Side 77
Side 78
Side 79
Side 80
Side 81
Side 82
Side 83
Side 84
Side 85
Side 86
Side 87
Side 88
Side 89
Side 90
Side 91
Side 92
Side 93
Side 94
Side 95
Side 96
Side 97
Side 98
Side 99
Side 100
Side 101
Side 102
Side 103
Side 104
Side 105
Side 106
Side 107
Side 108
Side 109
Side 110
Side 111
Side 112
Side 113
Side 114
Side 115
Side 116
Side 117
Side 118
Side 119
Side 120
Side 121
Side 122
Side 123
Side 124
Side 125
Side 126
Side 127
Side 128
Side 129
Side 130
Side 131
Side 132
Side 133
Side 134
Side 135
Side 136
Side 137
Side 138
Side 139
Side 140
Side 141
Side 142
Side 143
Side 144
Side 145
Side 146
Side 147
Side 148
Side 149
Side 150
Side 151
Side 152
Side 153
Side 154
Side 155
Side 156

x

Árbók Háskóla Íslands

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Árbók Háskóla Íslands
https://timarit.is/publication/588

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.