Árbók Háskóla Íslands

Volume

Árbók Háskóla Íslands - 02.02.1923, Page 22

Árbók Háskóla Íslands - 02.02.1923, Page 22
12 VÖLUSPÁ íþrótt. Hún fæst einkanlega við hið torskilda. En hið tor- skilda er oft og einatt sizt íhugunar virði. Meun rita langt mál um íviði og loptvœgi Ijóðpundara. En þegar kemur að þeim vísum Völuspár og Sonatorreks, sem auðugastar eru að fegurð og andlegu efni, eru þær ekki taldar »þurfa skýr- inga við«. Það er því skiljanlegt, að norræn fræði liafi dregið að sér helzti fáa afburðamenn, en það hefur aftur gert þau lítilsigldari en vera þurfti. Einkum var það mikið mein að eiga ekki um miðja 19. öld menn, sem gátu blásið meira af lífsanda rómantiska skólans i hiuar nýju vísinda- aðferðir, menn á borð við Renan og Gaston Paris, sem áttu kvöldbjarmann af rómantíkinni yfir æsku sinni, en dagsbirlu raunvísindanna yfir þroskaaldri. Þeir menn, sem áttu þetta tvent, hafa ef til vill verið mestir ritskýrendur. Því til þess þarf ekki einungis gáfur og lærdóm, heldur ást á efninu og virðingu fyrir þvi. Annars er hætt við, að fornrit verði ekki annað en bitbein og skotspænir fyrir skarpskygni eða skarp- vitra heimsku skýrandans. Samt verður ekki fram hjá þessum skýringum gengið, og vafasamt hvort þær lökustu væri betur ógerðar. Jafnvel þar sem þær komast út i verstar ógöngur, geta þær varað aðra við sömu villustigum. Og Völu- spá t. d. gerir ekkert til, þótt ritskýrendur beri járu á hana, nagi hold alt af beinum og verði feitir af. Hún rís upp aftur heil að morgni, eins og Sæhrimnir Einherja og hafrar Þórs. Skýringar úreldast. Handritin standa. Hitt er lakara: að þessar skýringar ná svo skamt, af því að þeim er sett of lágt takmark. Eins og rómantiska forn- fræðin vildi reisa háa turna á tómum sandi, hafa visindi efnishyggjunnar lagt alla alúðina við að grafa fyrir og slyrkja undirstöðu, sem ekkert hefur verið bygt ofan á. Til hvers er allri þessari orku eytt í að skýra Völuspá? Ekki vegna þeirra fáu orða, sem hvergi koma fyrir nema þar. Ekki til þess að koma henni aftur í sína upprunalegu mynd, þvi það er bæði óvinnandi vegur i sjálfu sér, enda getur ekki verið nema áfangi á leiðinni. Ekki lil þess að vita, hvar og hvenær hún er ort, því að það eru heldur ekki nema spor í áttina til skilnings. Flestir skýrendur myndi svara, að gildi kvæðisins væri sögulegt: það sýndi merkilegt stig í bókmentum, menningu og lífsskoðun. Þetta er líka vafalaust mikið atriði. En sumir þessara manna myndi missa allan áhuga á kvæðinu, ef þeir teldi það af kristnum rótum runnið. Þeir myndi ekki hirða um þá reynslu, sem
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108
Page 109
Page 110
Page 111
Page 112
Page 113
Page 114
Page 115
Page 116
Page 117
Page 118
Page 119
Page 120
Page 121
Page 122
Page 123
Page 124
Page 125
Page 126
Page 127
Page 128
Page 129
Page 130
Page 131
Page 132
Page 133
Page 134
Page 135
Page 136
Page 137
Page 138
Page 139
Page 140
Page 141
Page 142
Page 143
Page 144
Page 145
Page 146
Page 147
Page 148
Page 149
Page 150
Page 151
Page 152
Page 153
Page 154
Page 155
Page 156

x

Árbók Háskóla Íslands

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Árbók Háskóla Íslands
https://timarit.is/publication/588

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.