Árbók Háskóla Íslands - 02.02.1923, Page 107
51—52. v.
SKÝRINGAR
97
en er Múspells synir
ríða Myrkvið yfir,
veizta pú pá, vesall, hve pú vegr.
Olrik hefur getið þess til, að hér hafi upprunalega staðið:
Múspells megir, eins og Snorri hefur á einum stað. Gæti
það verið runnið af misskilningi orðanna i Heliand: Mud-
spelles megin obar man ferid (c: máttur Múspells fer yfir
menn). Á þessu stigi virðast Norðurlandabúar helzt hafa
hugsað sér Múspell föður jötnaflokks, er kæmi í ragnarök-
um og ætti drjúgan þátt í að ráða niðurlögum goðanna. En
þessi hugmynd hefur jafnan verið óljós og aldrei alþýðu
eign. Múspell kemur ekki fyrir í þeim kvæðum, sem varð-
veitt eru, nema á þessum tveim stöðum. — Auk þess segir
Snorri talsvert frá Múspellsheimi, eldheiminum suðræna,
senx Surtur ræður yfir. Hann talar um Múspells syni, megi,
og segir jafnvel, að Múspell eigi Naglfar. En hann verst
allra frétta urn, hver Múspell sé. Um samband Surtar og
Múspells sona, sjá sk)rringar við næstu vísu.
fíflmegir, jötnar. Óljóst er, hvort úlfurinn (freki) og jötnar
þeii’, sem hér er átt við, koma á Naglfari með Loka (bróðir
Býleists = Loki), eða eru fyrir á ströndinni, þegar Loki
lendir, svo að hann sláist þar í för með þeim.
Býleistr, samsett af b5rr = bær, og leislr (smbr. gotn.
laistjan, fylgja, fara á eftir): sá sem fer yfir h)rgðir (i loftinu,
smbr. annað nafn Loka sjálfs: Loptr).
52. vísa.
Surtr. Heimildir um Surt eru allmiklar. í Vfþrm. (17—18.
v.) og Fáfnismálum (14. v.) er hann einn nefndur af and-
stæðingum goðanna, þar sem di-epið er á i-agnarök í Vfþrm.
(50—51. v.) er talað um Surfaíoga, sem brenni heiminn. í
Háleygjatali virðist sagt, að Óðinn hafi boi'ið skáldamjöðinn
ór Surts sökkdölum (vísan er ekki nema brot), og í vísu í
Bergbúaþætti (Skjalded. II, B, 229) er talað um að fara
»niður í sveit Surts ens svarta í enn heita eld«. Auk þess
er Surtr nefndur í Fjölsvinnsm. í myrku máli, sem ekkert
vei’ður af ráðið, og sem alment jötunsnafn í kenningum hjá
Hallfreði (sjá L. p.). Við þetta bætist nú frásögn Snorra,
sem áður er gerð grein fyrii', íslenzka örnefnið Surtshellir
13