Árbók Háskóla Íslands

Volume

Árbók Háskóla Íslands - 02.02.1923, Page 146

Árbók Háskóla Íslands - 02.02.1923, Page 146
136 VÖLUSPÁ og andi, ilt og gott, tregða og líf. Þessi öíl eru í honum, sálarlíf hans hefur kviknað milli þeirra, eins og neisti milli tveggja skauta. En þau eru líka fyrir utan hann, meira en hann: allur heimurinn er til orðinn fyrir baráttu þeirra og samstarf. Goðin eru komin af jötnum. Jötunseðlið er erfð þeirra, áður en þau hrasa. En um leið eru þau meira en jötnar. Hvað hefur lyft þeim, hvert stefna þau? Það verður ekki fullyrt, að höfundur Völuspár hafi haft svar við þessari spurningu í huga, þegar hann orti fyrsta hluta kvæðisins. En hann svaraði henni áður en lauk, og kvæðið er þannig til orðið, að liklegt er, að hann hafi skoðað endinn í upp- hafi, séð alt í einni heildarsýn. Aðalatriði heimsskoðunar hans eru þessi: tveir andslæðir heimar eru til; öðrum megin heimur hins óskapaða efnis, sem jötnarnir standa næst og eru fulltrúar fyrir; hinum megin ríki hins allsráðanda guðs. Goð og menn eru á leið milli þessara tveggja heima. Frá því sjónarmiði verður alt ósamræmi og öll barátta skiljan- leg. Mark þessarar baráttu er að losna við áhrifin, sem draga niður á við, en ná varanlegu sambandi við hinn æðsta guð. En þessi leið er löng. Hún verður ekki farin slysalaust, né án þess að margir heltist úr lestinni. Jötnarnir sleppa ekki ítökum sinum fyr en i fulla hnefana. Helja heimtar sitt. Pó lýsir Völuspá fyrst gullaldri goðanna, lífinu á Iðavelli, áhyggjulausu æskulífi og hvíld eftir örðugustu afrek sköpun- arinnar. Þessi þáttur goðasögunnar er bezt einkendur með hinum djúpsæju orðum: var þeim vetlergis vant ór gulli. Þeir áttu nóg, o: létu sér nægja það sem þeir áttu En þessi gullaldur ber ekki vott um annað en fyrstu gleðina yfir að hafa vaxið upp yfir jötnana og komið skipulagi á heiminn. Um fullkomnun er ekki að ræða. Nú hefst einmitt eld- raunin, sem sker úr, hverjir eiga að stíga enn hærra og hverjir að hrapa aftur. Jötnar sitja um tækifæri að freista goðanna. Þau láta glepjast og spillast, ekki alt í einu, heldur stig af stigi. Hér skal reynt að rekja þessi stig, gera skýrari hina spaklegu hugsun, sem í kvæðinu er sett fram í myrk- um líkingum. Fyrsta stigið er óljósast. En það fer vafalaust næst anda kvæðisins að álíta hinar þrjár þursa meyjar, sem gera enda- sleppan gullaldur og ánægju Ása, fagrar og lævísar jötna- meyjar, sendar til þess að kveikja ágirnd og ójöfnuð með
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108
Page 109
Page 110
Page 111
Page 112
Page 113
Page 114
Page 115
Page 116
Page 117
Page 118
Page 119
Page 120
Page 121
Page 122
Page 123
Page 124
Page 125
Page 126
Page 127
Page 128
Page 129
Page 130
Page 131
Page 132
Page 133
Page 134
Page 135
Page 136
Page 137
Page 138
Page 139
Page 140
Page 141
Page 142
Page 143
Page 144
Page 145
Page 146
Page 147
Page 148
Page 149
Page 150
Page 151
Page 152
Page 153
Page 154
Page 155
Page 156

x

Árbók Háskóla Íslands

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Árbók Háskóla Íslands
https://timarit.is/publication/588

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.