Árbók Háskóla Íslands

Volume

Árbók Háskóla Íslands - 02.02.1923, Page 150

Árbók Háskóla Íslands - 02.02.1923, Page 150
140 VÖLUSPÁ bjarga Baldri, verja hann bana, kalla hann úr Helju, Höður er veginn, Loka er hegnt, En alt er þetta annaðhvort mis- ráðið, eða einungis til bráðabirgða. Heimurinn er spiltur. Hann verður ekki skírður, nema í eldi. Lýsingin á kvölum vondra manna og vargöldinni á undan ragnarökum kemur í Völuspá eins og þetta væri afleiðingar þess, sem á undan er farið. Stjórnendur heimsins hafa gert sig seka í óhæfu, þessvegna er heimurinn af göflum genginn. En i raun og veru er lifsskoðun skáldsins ekki sköpuð með afálykt, heldur tilálykt. Hann ályktaði ekki: af því að goðin eru spilt, hlýtur jörðin að vera dauðans skuggadalur — heldur: slikum heimi sem þessum hlýtur að vera stjórnað af ófullkomnum goðmögnum. Hann þekti mannlífið. Það fullnægði ekki siðakröfum hans. Goðin þekti hann ekki. En honum datt ekki i hug, að slíkt djúp væri milli goða og manna, að ekki myndi að lokum einn dómur yfir alla ganga. I því efni er hann alheiðinn. Hann tók sundurlausar goð- sögur alþýðunnar: um erjur goða og jötna, dauða Baldurs, heimsendi, fall goðanna — hnitaði þær saman, gerði blind örlögin sjáandi og siðferðið að örlögsíma tilverunnar. Á þessari hugsanabraut var skáldið, þegar hann kyntist kristninni sjálfri, kristniboðinu, sem í var fólgið hvorttveggja: hin ægilegasta hótun og hið dýrðlegasta fyrirheit. Að öðrum kosti hefði þau atriði, sem hann tók frá hinum nýja sið, orðið nýjar bætur á gamalt fat, stungið í stúf við alla undir- stöðu kvæðisins. Nú var hann maður til þess að færa sér hið nýja Ijós í nyt — ekki til þess að varpa hinni heiðnu lífsgátu frá sér, heldur til þess að ráða hana við birtu þess. Hann niðurbraut ekki Ásatrúna, hann fullkomnaði hana. Pvi verður Völuspá lífsheild, bæði frá sjónarmiði listar og lifsskoðunar. Baldur og Höður eiga það að miklu leyti Kristi að þakka, að þeir verða drotnar hins endurfædda heims. Þó var sú hugsun ekki ókunnug þeim mönnum, er aldir voru upp við sögu Sigurðar Fáfnisbana, að sú væri ein leið til æðsta frama að þola bana fyrir sakleysi. En með þessu móti sást bjarmi af betra degi mitt i verstu spillingunni. Loka mis- tókust ráðin ekki síður en óðni. Með vígi Baldurs ætlaði hann að vinna goðunum höfuðgrand, en lyfti Baldri i raun og veru á stig nýrrar fullkomnunar. Ekkert getur grandað þeim, sem sjálfur er grandvar. Því munu einnig góðir menn og eiðvandir lifa af ragnarök og njóta eilífs yndis.
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108
Page 109
Page 110
Page 111
Page 112
Page 113
Page 114
Page 115
Page 116
Page 117
Page 118
Page 119
Page 120
Page 121
Page 122
Page 123
Page 124
Page 125
Page 126
Page 127
Page 128
Page 129
Page 130
Page 131
Page 132
Page 133
Page 134
Page 135
Page 136
Page 137
Page 138
Page 139
Page 140
Page 141
Page 142
Page 143
Page 144
Page 145
Page 146
Page 147
Page 148
Page 149
Page 150
Page 151
Page 152
Page 153
Page 154
Page 155
Page 156

x

Árbók Háskóla Íslands

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Árbók Háskóla Íslands
https://timarit.is/publication/588

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.