Tímarit Máls og menningar


Tímarit Máls og menningar - 01.12.1974, Side 103

Tímarit Máls og menningar - 01.12.1974, Side 103
Galdrar skefjum. Það virðist ekki þurfa nema tilviljunarkennd atvik til þess að vekja slík viðbrögð, og atvikin eru ekki endilega tengd kveikjum sektarkenndar viðkomandi persónu. Oft virðist eins og dularfullir glæpir verði einstakling- um heppilegt tilefni til þess að geta blásið út eigin sektarkennd og friðþægt fyrir hana með játningu og skriftum. Nokkur dæmi um játningar kvenna á galdri og glæpaverkum gátu verið af slíkum toga. Það þurfti ekki annað að koma til en hamin sektarkennd, sem var orðin þeim ofviða og leitaði útrásar í játningu ímyndaðra verka, til þess að geta hlotið friðþægingu. Draumar gátu einnig átt mikinn þátt í sjálfviljugum játningum um galdra- kukl. I draumum koma furðulegustu kenndir upp í yfirborð draumvitundar- innar. Öttadrauríar fullorðinna kvenna fyrrum vöktu oft svipaða skelfingu með þeim eins og óttadraumar barna vekja nú með börnum. Skelfing og hræðsla í vöku tók á sig hryllingsmyndir í draumum. Dulvituð óskhyggja kemur skýrt fram í draumum. Freud hefur lýst þessu: „Hatur og drápshyggja fá útrás og það er ekki óalgengt, að menn óski dauða sinna nánustu í draum- um. Mönnum virðist sem þessar kenndir séu upprunnar í einhverjum afkim- um sálarinnar, sem minna helzt á helvíti . ..“ Fyrrum höfðu menn mikla trú á draumum, og skýrir, ,,syndsamlegir“ draumar höfðu mikil áhrif á sálar- lífið. Þess konar draumar gátu orðið til þess, að dreymandinn gat farið að ímynda sér að hann væri glataður og á snærum djöfulsins. Syndsamlegar langanir að mati 16. aldar guðfræði hlutu að hærast í brjóstum afskiptra kvenna bæði meðvitaðar og dulvitaðar. Þessar langanir birtust þeim oft í draumum, oft í gervi þeirra mynda, sem vöktu mestan hryll- ing á þeirri tíð. Kenningar klerkanna um vald hins illa staðfestust í draum- um þeirra, og þær gátu ekki séð skýrar, hversu útskúfaðar þær voru frá guð- legri náð. Kynórar voru taldir djöfulsins spilverk og sú sem hafði draumfarir af þeim toga, gat álitið sig nokkurskonar brúði djöfulsins. Mögnunin á valdi og afskiptum kölska gegnsýrði vitundarlífið og skelfingin sem spratt af þessu, vitraðist í draumum. Það gat haft þær afleiðingar með þeim sem veiklaðastir voru andlega, að þeir teldu sig algjörlega á valdi Satans. Sagan af Frangoise Fontains vottar sefjunarmátt tíðarandans. Hún var vinnustúlka í Normandí og var yfirheyrð án pyndinga og játaði að hafa átt samfarir við djöfulinn. Hún kvað paurinn hafa heimsótt sig í líki karlmanns, sem kom inn um gluggann. Geðlæknar nú á dögum þekkja keimlíkar sögur sjúklinga sinna, nema hvað paurinn leikur ekki lengur annað hlutverkið, heldur hetja viðkomandi persónu. Það má teljast merkilegt, að sálsýkisfaraldur galdraofsóknanna skyldi ekki 229
Side 1
Side 2
Side 3
Side 4
Side 5
Side 6
Side 7
Side 8
Side 9
Side 10
Side 11
Side 12
Side 13
Side 14
Side 15
Side 16
Side 17
Side 18
Side 19
Side 20
Side 21
Side 22
Side 23
Side 24
Side 25
Side 26
Side 27
Side 28
Side 29
Side 30
Side 31
Side 32
Side 33
Side 34
Side 35
Side 36
Side 37
Side 38
Side 39
Side 40
Side 41
Side 42
Side 43
Side 44
Side 45
Side 46
Side 47
Side 48
Side 49
Side 50
Side 51
Side 52
Side 53
Side 54
Side 55
Side 56
Side 57
Side 58
Side 59
Side 60
Side 61
Side 62
Side 63
Side 64
Side 65
Side 66
Side 67
Side 68
Side 69
Side 70
Side 71
Side 72
Side 73
Side 74
Side 75
Side 76
Side 77
Side 78
Side 79
Side 80
Side 81
Side 82
Side 83
Side 84
Side 85
Side 86
Side 87
Side 88
Side 89
Side 90
Side 91
Side 92
Side 93
Side 94
Side 95
Side 96
Side 97
Side 98
Side 99
Side 100
Side 101
Side 102
Side 103
Side 104
Side 105
Side 106
Side 107
Side 108
Side 109
Side 110
Side 111
Side 112
Side 113
Side 114
Side 115
Side 116
Side 117
Side 118
Side 119
Side 120
Side 121
Side 122
Side 123
Side 124
Side 125
Side 126
Side 127
Side 128
Side 129
Side 130
Side 131
Side 132
Side 133
Side 134
Side 135
Side 136
Side 137
Side 138
Side 139
Side 140
Side 141
Side 142
Side 143
Side 144
Side 145
Side 146
Side 147
Side 148

x

Tímarit Máls og menningar

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tímarit Máls og menningar
https://timarit.is/publication/1109

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.