Tímarit Máls og menningar - 01.02.2009, Page 2
2 TMM 2009 · 1
Frá ritstjóra
Í Búsáhaldabyltingunni hefur nafn Vilmundar Gylfasonar iðulega borið
á góma, sem ekki er að undra því að hann var róttækur hugsuður sem
setti fram skýrt mótaðar hugmyndir um nýja stjórnskipan og nýja siði í
íslenskum stjórnmálum og viðskiptum – og reyndi af alefli að vinna
þeim brautargengi. Hann hafði ekki erindi sem erfiði, og ýmsir þeir
ósiðir sem hann vildi leggja til atlögu við héldu áfram að einkenna
íslenskt valdakerfi uns það féll af innanmeinum sínum.
Á Páskadag árið 1980 flutti Vilmundur erindi í Ríkisútvarpið sem
birtist hér þar sem hann rakti hugmyndir sínar um þróun íslenskra
stjórnmála frá sjálfstæðisbaráttu 19. aldar og fram á sinn dag. Hann
aðhylltist Miðlun Páls Briem og var eindreginn stuðningsmaður Upp-
kastsins 1908. Þeir sem vilja kynna sér málstað andstæðinga Uppkasts-
ins ættu að verða sér út um skáldsögu Ármanns Jakobssonar, Vonar
stræti, þar sem segir frá þeim hjónum Theódóru og Skúla Thoroddsen
þegar Skúli reis gegn Uppkastinu.
Þetta eru ekki úreltar pælingar um löngu útrædd mál heldur er hér
tekist á um elífðarmál smáþjóðar, og aldrei brýnni en nú á dögum þegar
allt þarf að endurskoða, ekki síst sjálfsmynd þjóðarinnar sem aldrei var
fáránlegri en í aðdraganda hrunsins.
Oflæti flónsins birtist ekki síst í brjálæðislegum skipulagsáformum
með þeim afleiðingum að „við sitjum uppi með mikla auðn og eitthvað
sem líkist rústum“ eins og Hjálmar Sveinsson orðar það í grein sinni
Skipulag auðnarinnar þar sem hann rekur átakanleg dæmi um þau
spjöll sem arkitektúr góðærisins vann á höfuðborgarsvæðinu. Kalla má
þá stefnu sem fylgt var nokkurs konar „einkavæðingu útsýnisins“, sem
vissulega var í eðlilegu framhaldi af einkavæðingu fiskimiðanna.
Silja Aðalsteinsdóttur stendur nú upp úr ritstjórastól Tímaritsins
öðru sinni fyrir undirrituðum. Það er mikill heiður enda hafa bæði rit-
stjóraskeið Silju verið blómaskeið TMM. Ekki stendur til að bylta efn-
istökum og áfram verður það vettvangur fyrir umræðu um bókmenntir,
listir og þjóðfélagsmál. Og því skal hátíðlega lofað að breyta ekki
brotinu!
Guðmundur Andri Thorsson
TMM_1_2009.indd 2 2/11/09 11:27:24 AM