Tímarit Máls og menningar - 01.02.2009, Side 31
F r á F l u g u m ý r i t i l f j á r m á l a k r e p p u
TMM 2009 · 1 31
Hermanns, hún er líka meira grípandi. Líkt og Auður Jónsdóttir notfær-
ir Hermann sér ýmis brögð úr vopnabúri spennusagna og jafnvel kvik-
mynda. Ævintýri Guðjóns og Helenu sverja sig þó ekki í ætt við skand-
inavískar morðgátuskáldsögur heldur birtast þar kaflar og senur sem
gætu verið komnar úr amerískum trylli eða kvikmynd, á köflum er
engu líkara en Guðjón Ólafsson sé lentur í Bond-mynd, neðanjarðar í
miðstöð samtaka sem virðast ætla að leggja undir sig heiminn.
Spennusagan er aðeins umbúðir utan um það sem Hermann gerir
best og hefur aldrei gert betur, að rannsaka tengsl minnis, veruleika og
texta.
Í sögunni vaknar Guðjón minnislaus eftir líkamsárás og ekki líður á
löngu áður en Helena hlýtur sömu örlög. Reyfarakennd sagan af bata
þeirra og samskiptum við lækna og misklikkaða vísindamenn verður að
ævintýralegu ferðalagi um minnið, minnisleysi og ofurminni eða næmi
skiptast á og þau skötuhjú virðast komast að mörkum þess sem er
mannsheilanum mögulegt.
Í Algleymi er pælingum úr hugfræði og sálfræði fléttað saman við
eðlisfræði tíma og rúms, eins og hún birtist í CERn-hraðlinum í Sviss.
Ég veit ekki hversu margt af því sem Guðjón og Helena verða fyrir í sög-
unni á við einhver rök að styðjast í vísindaheiminum, en í heimi sög-
unnar virkar það, Algleymi er á köflum jafn flókin og gáfuleg og fyrri
verk Hermanns, hún er jafnvel fyndnari og mun meira spennandi.
Algleymi var ein þeirra bóka sem gladdi mig mest fyrir jólin og sú sem
ég mun líklega þurfa að lesa aftur fyrst.
Algleymi er hugmyndatryllir eins og stendur á kápu, nýjasta skáld-
saga Hallgríms Helgasonar, 10 ráð til að hætta að drepa fólk og byrja að
vaska upp er nær því að vera hefðbundinn tryllir og sækir margt til
spennumynda. Sagan af leigumorðingjanum Toxic minnir raunar meira
á Hr. Alheim en stórvirki Hallgríms á borð við Rokland, Höfund Íslands
eða 101 Reykjavík. Hún byggir á einni hugmynd sem er smellin og
skemmtileg, útfærslan er snörp og oft spennandi, en útkoman er ekki
jafn þétt og þegar Hallgrímur er upp á sitt besta.
Toxic er afkastamikill leigumorðingi í new York en villist til Íslands
á æðisgengnum flótta undan löndum sínum í króatísku mafíunni. Hann
lendir í Keflavík í gervi bandarísks sjónvarpspredikara sem hann hefur
myrt á flugvallarklósetti. Hingað kominn tengist hann síðan fjölskyldu
íslenskra predikara sem reka sjónvarpsstöð þar sem Toxic þarf að leika
hlutverk sitt til fulls og boða áhorfendum amerískan kristindóm í beinni
útsendingu.
Samfundir og samstuð Toxics við Ísland gefa færi á margs konar
TMM_1_2009.indd 31 2/11/09 11:27:27 AM