Tímarit Máls og menningar - 01.02.2009, Page 96
96 TMM 2009 · 1
Heinrich Böll
Tvær smásögur
Játningar hundafangara
Ég er mjög tregur til að viðurkenna hvað ég fæst við, sem afkoma mín
byggist reyndar á, en neyðir mig til athafna sem ég get ekki ætíð fram-
kvæmt með góðri samvísku: Ég er starfsmaður hundaskattstofunnar og
geng um engi borgar okkar til að leita uppi óskráða geltara. dulbúinn
sem friðsamur göngumaður, hnellinn og lítill, með miðlungs dýran
vindil í munni geng ég um skrúðgarða og kyrrlát stræti, ræði við fólk
sem gengur með hunda sína, legg nöfn þeirra og heimilisfang á minnið,
klóra hundinum vingjarnlega á hálsinum, í þeirri vissu að innan
skamms mun hann færa mér fimmtíu mörk í tekjur.
Ég þekki hundana sem eru skráðir, nánast þefa þá uppi, finn það á
mér, þegar hundur með hreina samvisku stendur við tré og léttir á sér.
Áhugi minn beinist sérílagi að hvolpafullum tíkum, sem sjá framá
ánægjulegt got verðandi skattgreiðanda: Ég fylgist með þeim, legg
nákvæmlega á minnið hvaða dag þær muni gjóta og fylgist með hvert
farið er með hvolpana, leyfi þeim grunlausum að stækka þar til enginn
vogar sér að drekkja þeim – og fel þá síðan lögunum. Ég hefði ef til vill
átt að velja mér annan starfa, því að mér þykir vænt um hunda, og er því
sífellt með samviskubit: Skylda og ást takast á í brjósti mér, og ég játa
opinskátt að ástin sigrar oft. Það eru til hundar, sem ég fæ mig ekki til
að tilkynna, þar sem ég – eins og sagt er - loka báðum augum. Sérstök
mildi gagntekur mig nú, einkum vegna þess að minn eigin hundur er
ekki skráður: Blendingur, sem kona mín fóðrar af ástúð, uppáhaldsleik-
fang barna minna, sem hafa engan grun um hversu ólögmætri skepnu
þau auðsýna ást sína.
Lífið er virkilega áhættusamt. Ég ætti ef til vill að vera varkárari; en
sú staðreynd að ég er í vissum mæli vörður laganna, styrkir mig í þeirri
vissu að mega stöðugt brjóta þau. Starf mitt er erfitt: Ég húki tímunum
saman í þyrnirunnum úthverfanna, og bíð þess að gelt berist frá bráða-
birgðaskýli eða ofsafengið gelt úr skúr þar sem ég reikna með að sé
grunsamlegur hundur. Eða ég hnipra mig bak við leifar af múrvegg og
TMM_1_2009.indd 96 2/11/09 11:27:30 AM