Skýrsla miðstjórnar Alþýðusambands Íslands um starf sambandsins 1946-1948 - 14.11.1948, Síða 36
sjálfsögðu ekkert eðlilegra en að leitað sé slikra upplýsinga i skrif-
stofu verkalýðssambands, enda gera lög allra slíkra sambanda ráð fyrir
því sem skyldu, að öll félög sendi sambandi sínu félagaskrá sfna.
Þar sem nokkur misbrestur hafði verið á sendingu meðlimaskráa
hjá ýmsum félögum, sendi sambandsstjórn sambandsfélögum sínum
bréf, þar sem þau voru sérstaklega beðin um að senda þær skrifstofu
sambandsins.
Að sjálfsögðu tóku flest sambandsfélög þessu vel, en svo bregður
þó við að „Alþýðublaðið" og „Skutull", blað Alþýðuflokksins á ísa-
firði, gera þessi sjálfsögðu og eðlilegu tilmæli sambandsins að átyllu
til æsingaskrifa gegn stjórn Alþýðusambandsins, þar sem skorað
var á sambandsfélögin að hafa tilmæli sambandsstjórnar að engu. Svo
gáfulegar voru sakargiftirnr á hendur sambandsstjórn, að staðhæft
var að „kommúnistar mundu eiga að nota meðlimaskrár verkalýðs-
félaganna við bæjarstjórna- og þingkosningar", sem þá voru fram-
undan. En vér spyrjum: Hvers vegna gátu ekki ólukkans kommarnir
gert sig ánægða með hinar opinberu kjörskrár, sem vissulega eru
miklu fullkomnari og ítarlegri til að fara eftir í kosningum?
í „Alþýðublaðinu" 21. okt. 1945 er grein með rosafyrirsögninni:
„VegiB að verkalýðssamtökunum: Kommúnistar gera Alþýðusamband,
íslands að kosningahreiðri fyrir sig.“ Síðan segir m. a.:
„Þeim verður ekki flökurt af ósvifninni hinum kommúnistísku
loddurum. ... Hagsmunabaráttu verkalýðsins gera þeir að æki { póli-
tískri valdabaráttu sinni. Þcir munu heldur ekki svifast neins. ...
Verkalýðsfélögin eiga ekki að afhenda þeim meðlimaskrár sínar."
o. s. frv.
Nokkur sambandsfélög eða félagastjórnir virðast hafa orðið þessum
dæmalausa þvættingi og barnalega rugli að bráð, og látið undir höfuð
leggjast að hlíta lögum sambandsins í þessu efni. Þau helztu í þessum
hóp eru: Sjómannafélag Reykjavíkur og Verkalýðsfélagið Baldur á
ísafirði.
HvaS er A.S.S.?
Um það bil sem ríkisstjórnin boðaði til hinnar frægu stéttarráð-
stefnu í Reykjavík s.l. sumar, til að ræða um gengislækkun, vísitölu-
36