Úrval - 01.02.1946, Qupperneq 57
JARÐGÖNG FANGANNA
65
búðanna. Ljósaperum hnupluð-
um við úr skálunum. Ef Þjóð-
verjamir gleymdu að setja
straum á á daginn, notuðum við
heimagerða lampa og kolur, sem
brenndu smjörlíki. Við notuðum
litia dráttarvagna, til þess að
flytja sandinn eftir göngunum
og að opunum. Það var svo heitt
þama niðri, að flestir fangamir
unnu naktir, og við komum upp
steypiböðmn, svo að þeir gætu
skolað sig þegar þeir komu upp
og þvegið af sér sandinn, sem
hefði komið upp um allt.
í maílok, mánuði eftir að
gröfturinn hófst, vom jarð-
göngin, hvert um sig, orðin 70
fet á lengd. Sumarið var í nánd,
bezti tíminn til stroks, því að
þá gátum við alltaf aflað okkur
viðurværis á víðavangi.
Foringjarnir ákváðu að ljúka
við „Tom.“ Viku síðar var gert
jarðhús, þar sem göngin vom
orðin 100 feta löng. Það var
smáklefi, þiljaður með viðar-
borðum úr fletum okkar. Þar
gátu mexmirnir hvílzt, án þess
að þurfa að fara upp í skálann.
Okkur reiknaðist svo til, að
jarðhúsið væri beint undir „við-
vörunarvírunum.“ Þá voru eftir
100 fet til skógarins.
Við mútuðum sumum varð-
mönnum með kaffi eða súkku-
laði, til þess að útvega okkur
blek, penna, pappír, segulstál
(til þess að búa til áttavita),
hluta úr útvarpstækjum (til
þess að búa til útvarpstæki okk-
ar, sem við hlustuðum daglega
á), ljósmyndavél, hamra, sagir,
nagla og landakort. Aðrir varð-
menn lánuðu okkur vegabréf
sín, og gerðum við eftirmyndir
af þeim. Við stældum vélrituð
skjöl og stimpluðum þau meira
að segja með þýzka arnarmerk-
inu og hakakrossinum, en
stimplana bjuggum við til úr
skóhælagúmmíi. „Falsanadeild-
in“ útbjó um 400 fölsuð skjöl
alls.
Á klæðaverkstæðinu unnu 60
manns við að sauma þýzka flug-
mannabúninga og borgaraleg
föt úr enskum flugbúningum. —
Við tókum nú að hraða okkur
við verkið og hættum að vera
eins varfærnir með sandinn.
Dag nokkurn rakst „snuðrari“
á ljósgulan sand í garðinum.
Mikil leit var þegar gerð, en allt
kom fyrir ekki. Þjóðverjarnir
grófu skurð frá skála nr. 123
út að vírnum, en hann var ekki
svo djúpur, að hann kæmi nið-
ur á „Tom“.
I júnílok töldum við göngin