Ný sumargjöf - 01.01.1861, Blaðsíða 23
23
Medúsa var ein í (ölu hinna þriggja systra, er Gorgóar
hétu og var hún svo ógurleg ásýndum, að hver maður
varð að sleini, sem hanaleit; voru systurnar dætur drekans
Forkys og nöðrunnar Ekidnu. En það varð ekki tekið
aptur, sem talað var, nema því aðeins, að liann gerði sig
að dáðlausum raupara. Réðist hann því til ferðar og reið
honum nú mest á, að finna bústað systranna. Bað hann
því til Aþenu og varð bænheyrður. Sendiguðinn Hermes
kom og vísaði honum leið til hinna ógirnilegu systra, er
Græjur hétu; voru þær og komnar af drekanum Forkys.
þær voru fæddar með hærum og áttu saman eitt auga
og eina tönn. Skiptust þær á með hvorutveggja, til að
sjá um víða veröld og tyggja mat sinn. — Gátu þær systur
einar haft gagn af auganu, og sáu þær með því allt í
öllum löndum, hvað leynt sem var. Var að vísu mikið láng-
leiði til þeirra, því þær bjuggu við vesturströnd jarðar-
straumsins, en Perseifur náði þángað heilu og höldnu fyrir
fylgd Hermesar. Tókst honum þegar að ná gripum þeirra,
því svo hittist á, að þeir lágu afsiðis. En systurnar voru
forvitnar af náttúrufari og síhúngraðar, leið því ekki á
Iaungu, að þær þreifuðu eptir áhöldum sínum; komust þær
í hár saman, þvi hver grunaði aðra, að hún hefði þau.
En er þær urðu þess áskynja, að þau voru á brottu, börm-
uðu þær sér sáran og létu herfilegum látum. Gerði þá
Perseifur varl við sig og kvaðst skyldu fús á, að fá þeim
gripina, ef þær segðu sér, hvar Gorgóar byggju og vísuðu
s饒"léið þángað. Sögðu kerlíngarnar lionum þá, að hann
skyldi leita upp þrjár dísir yndisfagrar, er byggju þar í
grend og biðja þær um það, er hann þyrfti til fararinnar;
skyldi hann þvínæst fara yfir jarðarstrauminn allt að tak-
V