Ný sumargjöf - 01.01.1861, Blaðsíða 30
30
honum, lagðist hann í víkíngu og rændi skip landasinna;
féll hann síðar í hendur l’ersa og var að maklegleikum
krossfestur, einsog annar illræðismaður.
Nú dróst óvígur her af Persum að Miletos og
komu sex hundruð skipa frá Feníkalandi. Lögðu Grikkir
þá til sjóorrustu undir eynni Lade, en biðu ósigur og
var það fremur vegna sundurlyndis og athugaleysis, en
fyrir sakir liðsmunar, að svo illa tókst. Unnu Persar
þvínæst Miletosborg og voru innbúarnir sumir drepnir, en
sumir herleiddir. Urðu nú Grikkir bæði í Asiu og á þraka-
landi að lúla ofurveldi Persa'; uppreisnin var gjörsamlega
kúguð og hafði Persakonúngur aldrei verið voldugri en
nú var liann.
Engum var Darius reiðari en Aþenuborgarmönnum,
því bæði kendi hann þeim um bruna Sardesborgar og
svo var honum líka slorkun að því, að jafnlítil þjóð skyldi
hafa boðið sér byrginn, svo afarvoldugum konúngi. þegar
honum var sagður bruni Sardesborgar, spurði bann, hverjir
Aþenuborgarmenn þessir væru, en er bann varð þess vís-
ari, skaut hann ör upp í loptið og mælti:- „Seifur! lát
mér auðnast, að hefna mín á Aþenuborgarmönnum!“
Skipaði hann og skutilsveini nokkrum að kalla jafnan til
sín yfir borðum: „Herra! hugsa þú til Aþenuborg-
armanna.“
Fyrst sendi Darius Mardonius tengdason sinn, hrauslan
• herforíngja með mikið lið og fór hann yfír Hellusund
gegnum þrakaland og Makedoniu, en skipa floti hans hélt
innleið með ströndunum. En er flotinn sigldi fyrir höfða
þann, er Aþos heitir, brast á stórviðri og týndist þar helf-
íngur skipanna, en tuttugu þúsundir manna drukknuðn;