Ný sumargjöf - 01.01.1861, Page 62
*
62
KONFUCIUS.
Konfucius, seni lifði á 6 öld fyrir híngaðburð Krists,
var kominn af hinum göfugustu ætlum í konúngsrikinu
Lou (þar sem nú heitir Chantong). Var faðir hans einhver
hinn mesti virðíngamaður í konúngsríkinu Song. Hann
andaðist þegar Konfucius var þriggja ára og varð möðir
hans ein að sjá um uppeldi hans. Sáust þess Ijös merki
þegar i bernsku, að hann var til mikilla hluta ætlaður.
Hann skeytti alls ekki um leika eða barnaskemtanir,
en með stillíngu sinni og siðsemi ávann hann sér virðíngu
allra og á fimlánda ári sinu var hann farinn að lesa
fornar fræðibækur. Lagði hann alla stund á að afla sér
menlunar og þekkíngar, svo að hann gæti siðar stuðlað
til útbreiðslu vizkunnar og d.vgðarinnar.
A hans tíma var Kínlandi skipt í eins mörg konúnga
ríki og nú eru þar skattlönd; voru þau oplastnær skattgild
keisaranum, en sérhvert þeirra hafði samt sín lög og sina
stjörnarskipun og var hver konúngur einráður í sínu ríki.
Um þenna tima drottnaði almenn siðaspilling við hirðir
þeirra, og reyndi Konfucius að útrýma henni. Skorti
hann hvorki gáfur né þrek til að kenna vizku og göða
siðu, gerði hann það opinberlega og varð kenníng hans
þvi áhrifameiri, sem hann sjálfur var lastvar í öllu dagfari
sínu, hógvær og hófsamur; fór því orðstír hans dagvax-
andi. Komst hann til hinna mestu mannvirðínga og
voru honum fengin hin arðsömustu embætti i hendur, en
hann neytti ekki valdsins til annars, en að afla kenningum
sinum sem mestrar útbreiðslu. Gn litið varð honum