Norðurljósið - 01.01.1966, Page 120
120
NORÐURLJÓSIÐ
og er enn af kristnum söfnuðum talinn „eingetinn sonur Guðs,
jœddur aj Maríu mey“ o. s. frv.“
Lúkas, sem ritaði sögu Jesú frá Nazaret, segir frá, með hverj-
um hætti fæðing Jesú varð, „er ég hafði rannsakað allt kostgœfi-
lega frá upphafi.“ Af frásögn hans er að sjá, að hann hafi talað
við Maríu móður Jesú. Er trúlegt, að Jónas eða aðrir á 20. öld
v.iti betur um tilkomu Jesú en samtímamaðurinn Lúkas eða móð-
irin sjálf?
Ritað er í „Lyl“ (bls. 206—208) um hina svonefndu Niceu-
ráðstefnu, — en hún var haldin árið 325 e. Kr. — og endar kafl-
inn svo: „Þá var og Jesús Kristur hafinn í tölu frelsaranna, hinn
sautjándi í röðinni.“ Þetta er skrýtin staðhæfing, er þess er gætt,
að kristna trúin kenndi frá upphafi sínu, að Jesús frá Nazaret
væri eini frelsarinn, sem frelsað getur oss synduga menn.
Höf. „Lyl“ vill ekki heyra, að Jesús Kristur sé nokkur frelsari.
Höf. kennir sem andatrúin i heild, að sérhver maður sé sinn eig-
in frelsari, og telur, að kenningunni um friðþægingu hafi verið
skotið inn í ritninguna. í þessu máli er það þó sannast, að kenn-
ingin um friðþæginguna, sem Kristur framkvæmdi, er samofin
allri ritningunni. Eins og sundurbrytjaður líkami er dauður, svo
er og biblían dauð og brytjuð bók, ef fellt er úr henni allt, sem
lýtur að friðþægingu Krists.
„Lyl“ kennir, að hjálparstarfsemi sé rekin í ósýnilega heim-
inum. Þeir, sem lengra séu komnir, hjálpi hinum áfram á þroska-
brautinni. Hún segir ennfremur, að menn get.i fæðzt mörgum
sinnum. Biblían segir: „Það liggur fyrir mönnunum eitt sinn að
deyja, og eftir það er dómurinn.“ Sú staðhæfing neitar endurfæð-
ingu eða endurholdgun manna. Sagan, er Kristur sagði, af ríka
manninum og Lazarusi (Lúk. 16.), sýnir, að því fer fjarri, að
sálir þeirra, sem sælunnar njóta hinum megin grafar, geti hjálpað
hinum. Kristur kennir, að menn komist ekki úr öðrum staðnum
í hinn, þótt þá langi til þess.
„Lyl“ kennir, að dánir menn séu á sveimi í kringum okkur á
jörðinni eða í geimnum umhverfis hana, þar sem hvert tilveru-
sviðið tekur við af öðru. Biblían kennir, að hinir vansælu, dánu
menn séu geymdir í dánarheimum niðri í jörðinni, þar sem þeir
bíða dóms síns, en „andaverur vonzkunnar“ séu í himingeimnum.
„Lyl“ segir frá öndum, sem enga þekkingu virðast hafa á Guði
eða hjálpræði hans í Jesú Kristi. Sumir þeirra eru lygnir, hrekkj-
óttir eða jafnvel gera illl af sér, og þeim fylgir sumum ógn eða
ótti. Biblían sýnir oss inn í bústað Guðs, þar sem ótölulegur