Norðurljósið - 01.01.1966, Qupperneq 142
142
NORÐURLJÓSIÐ
risna Krists, og leita því til hans til að finna athvarf og öryggi
hjá honum. Sagt er, að ýmsir Viet Cong menn hafi gerzt lið-
hlaupar til þess að geta heyrt boðskapinn um Krist og frelsazt
hjá honum.
Þá hefir það einnig borið til tíðinda þar, að margir ungir
menn, bæði frá Viet Nam og Bandaríkjunum, er særast í orrust-
um eða á annan hátt og fara í sjúkrahús, fá þar að heyra boð-
skapinn um frelsið í Kristi, fyrirgefning syndanna og eilíft líf.
Þarna hafa þeir tima til að hugsa og hundruðum saman hafa þeir
snúið sér til Krists og veitt honum viðtöku sem frelsara sínum.
Þannig er það, þrátt fyrir allar þær ógnir, sem stríðinu fylgj a,
þá verður þetta fjölda manns til eilífrar blessunar. Þannig getur
Guð snúið böli í blessun, þegar maðurinn heygir sig fyrir honum
og veitir Kristi viðtöku.
Heimildir að framanskráðu eru „Faith Digest“ febrúar 1966
og „Christianity Today“, desember 1965.
SKIPT UM HLUTVERK.
Blöð og útvarp hafa skýrt frá kirkjuþingi kaþólskra manna,
sem nýlega er lokið í Róm. í skýrslu, sem gefin var um ákvarð-
anir þingsins, er yfirlýsing um guðlegan innblástur heilagrar
ritningar. Er þar ekkert klipið utan af hlutunum, en skýrt og
skorinort kveðið að orði, svo að Lúter sjálfur hefði verið full-
sæmdur af, ef hann hefði orðað staðhæfingar þessara kaþólsku
manna. Þeir segja meðal annars:
„011 ritningin er guðdómlega innblásin og hefir sína nytsemi
til að kenna sannleika og hrekja villu, til að siðbæta framkomu
manna og kenna þeim rétt líferni, svo að maður, sem tilheyrir
Guði, geti orðið öflugur og útbúinn til hvers konar góðs verks.“
Hins vegar verður naumast eða ekki opnað svo erlent, kristi-
legt blað eða tímarit, að ekki sé þar minnst á fráfall kirkjudeilda
mótmælenda frá biblíunni sem orði Guðs, trúnni á guðdóm Krists
eða jafnvel trúnni á tilveru Guðs. Víða eru í guðfræðiskólum
eða í guðfræðideildum háskólanna menn, sem helzt virðast telja
það hlutverk sitt að uppræta alla biblíulega trú úr hjörtum þeirra
nemenda, sem koma þangað með einhvern trúarneista.
Sú var tíðin, að kaþólska kirkjan mátti ekki heyra boðaðan
fagnaðarboðskap Krists eða vita af lestri biblíunnar. Nú eru
það mótmælenda guðfræðingar, sem gegna þessu hlutverki, þess-
ari þjónustu djöfulsins. Með þeSsu er ekki verið að afsaka villur
kaþólsku kirkjunnar eða draga úr skaðvænleik þeirra.