Norðurljósið - 01.01.1984, Side 20
20
NORÐUKI.JÓSIÐ
gagnrýni frá. Þótt öllu öðru sé slegið á frest stutta stund á
meðan Guðsorð fær að komast að, verður allt mun auð-
veldara á eftir.
Hjónaband verður að mótast eftir ákveðnum fyrirmynd-
um. Ekki er farsælt, að það mótist eftir hyggjuviti manna, því
að það breytist með tíð og tíma. í Guðsorði eru bestu fyrir-
myndirnar. Guðsorð höfðar eiginlega til allra tímaskeiða.
Séum við fær um að meðtaka það og heimfæra það til þess
tíma, er við lifum á, þá býr það yfir eiginleikum til að ná
réttum grundvelli og til að rétt verði byggt ofan á þann
grundvöll.
Fjölskyldan þarf að fara í Guðshús og hlýða á Guðsorð, en
hún verður ekki síður að tileinka sér Guðsorð á virkum
dögum. Það getur leyst margan vanda. Mikið er rætt um
einlægni milli maka og einlægni milli foreldra og barna.
Guðsorð er tvímælalaust notadrjúgt til að einlægni skapist. í
Guðsorði er hægt að leita leiðbeininga, finna ráð þegar taka
þarf ákvarðanir sem leiða til lausnar á erfiðum flækjum.
Annað er það sem skiptir miklu máli, það er bænalífið á
heimilinu. í Postulasögunni 12. 12. lesum við um heimili,
sem auðsjáanlega var bænrækið. Reyndar er okkur sú hætta
búin, að verða sérgóð og mjög önnum kafin varðandi mál-
efni, sem snúa að okkur sjálfum. Eigingirni og hugsunar-
háttur kröfugerðarinnar er eitt einkenna nútímans. Slíkt
hefur í för með sér innri tómleika bæði hjá einstaklingum
ogí fjölskyldulífinu. Að láta sér annt um aðra skiptir ekki svo
litlu máli. Bænin er ein leiða til að beina huganum aðöðrum.
Á fyrrnefndu heimili höfðu margir komið saman til bæna.
Þeir voru að biðja fyrir Pétri, sem var í fangelsi. Meðan þeir
báðu var bæn þeirra heyrð og Pétur var leystur úr haldi fyrir
mátt Guðs. Hvílíkur viðburður fyrir heimili! Mig furðar ekki
á, að sonurinn á heimilinu, Jóhannes, er kallaðist Markús,
vildi eftir þetta fara og þjóna Jesú. Viðhorf okkar til lifsins og
mat okkar á því, hvað gefur því gildi, breytist, sé Guð hafður
með í ráðum í hjónabandinu.
Guð blessi hin fjölmörgu heimili og hjónabönd á okkar
tímum.
(Lítið eitt stytt. Þýtt úr Livets gang. Jakob Tangstad.). G. E.