Norðurljósið - 01.01.1984, Síða 40
40
NORÐURIJÓSTÐ
eindina (atom) þá gerðu menn gys að þeirri hugmynd: að
þetta gæti orðið mannkyninu hættulegt. Menn eru komnir á
aðra skoðun nú. Þetta , sem kemur hér á eftir ,er úr grein, sem
birtist fyrir 35 (nú 37) árum. Athugaverð er hún.
Þegar fyrsta k/arnorkusprengjan var sprengd í eyðimörkinni
í Nýju-Mexikó, varð eyðimerkursandurinn að samanbrœddu
grœnu gleri. Þessi staðreynd, samkvœmt tímaritinu „Free
World“ Frjáls heimur hefir vakið athygli nokkurra fornfrœð-
inga, sem hafa verið að verki í Efrats-dalnum forna. Þeir fundu
jarðlag, er sýndi, að þarna hafði verið kornrœkt fyrir 8000
árum. Þá fundu þeir jarðlag, er sýndi hjarðmanna menningu
miklu eldri. Ennþá eldri en hún var menning hella-búa. Nýlega
fundur þeir enn lag. Það var sambrœtt grœnt gler.
Þessi bræðsla sandsins í grænt gler, hún hlýtur að hafa átt
sér stað fyrir þúsundum ára. Þessi kjarnorkusprengja, sem
framleiddi grænt gler, sýnir hún tímann, þegar „jörðin varð
auðn og tóm“ sýnir hún hann?
Biblían geymir fleiri sögur um tortímandi eld, sem féll af
himni, t.d. Sódómu og Gómorru, sem brunnu til ösku.
(l.Mós. 19. 27. og28.
Þýtt úr „The Flame“ Loginn. Jan.-Feb. 1983).
Hlýðni keypt háu verði
Eftir Arthur C. Gook
Óvinurinn (Satan) hafði gert glappaskot! Það var sunnu-
dagskvöld. Leikrit var sýnt í Samkomuhúsinu, næsta húsi við
salinn (Sjónarhæð). Ætlunin var, að verk Drottins yrði fyrir
aðhlátri. En Guð er meiri en óvinur hans. Óskeikult mið hans
beindi ör, sem kom í hjarta manns, er eitt sinn hafði þekkt
hann, en var nú að reyna að gleyma honum. Það varð
ástæðan fyrir því, að saga þessi er skráð.
Leikritahöfundur íslenskur hafði reynt: að setja á svið það,
sem hann kallaði bænasamkomu. Bænasamkomur okkar
voru það, sem fólkið skildi aldrei. Þær höfðu verið á mánu-