Norðurljósið - 01.01.1984, Page 58
58
NORÐURIJÖSIÐ
förum til Guðs, mundir þú vilja láta mig deyja með brenni-
vín í maga?“
Ég mun aldrei gleyma hvernig drengurinn horfði á mig. Á
þessum tíma bar ég haturshug til Jesú, en ég virti tryggð
drengsins við frelsara sinn; og þegar ég sá hvernig hann
elskaði hann og treysti honum allt til dauða, var eitthvað sem
snerti hjarta mitt, og ég gerði fyrir þennan dreng nokkuð,
sem ég hafði aldrei gert fyrir neinn annan hermann — ég
spurði hann hvort hann vildi sjá herprestinn sinn. „Ó, já,
herra,“ var svarið.
Þegar herpresturinn kom, þekkti hann drenginn strax, þar
sem hann hafði oft hitt hann á bænasamkomunum í tjaldinu,
og hann tók í hönd honum og sagði: „Jæja, Charlie, það
hryggir mig að sjá þig í þessu sorglega ástandi.“
„Ó, það er allt í lagi með mig, herra,“ svaraði hann.
„Læknirinn bauð mér klóróform, en ég hafnaði því; þá
vildi hann gefa mér brennivín, sem ég hafnaði einnig; og nú,
ef frelsari minn kallar mig, get ég farið til hans með fullri
rænu.“
„Það kann að vera að þú lifir þetta af, Charlie,“ sagði
herpresturinn, „en ef Drottinn skyldi kalla þig í burtu, er þá
nokkuð sem ég get gert fyrir þig, eftir að þú ert farinn?“
„Herprestur, viltu gjöra svo vel að setja höndina undir
koddann og taka litlu Biblíuna mína; í henni muntu finna
heimilisfang móður minnar. Viltu vera svo góður að senda
henni Biblíuna, og skrifa bréf með og segja henni, að frá
þeim degi sem ég fór að heiman hafi ég aldrei látið líða svo
dag að ég hafi ekki lesið í Guðs Orði og beðið daglega að
Guð mætti blessa elskulega móður mína — og það gilti einu
hvort ég var á hergöngu, á vígvelli eða á spítala.“
„Er nokkuð annað sem ég get gert fyrir þig, drengur
minn?“ spurði herpresturinn.
„Já; viltu vera svo vænn að skrifa bréf til umsjónarmanns
Sand Street sunnudagaskólans, í Brooklyn, N.Y., og segja
honum að vingjarnlegu orðin hans, hinar mörgu bænir og
góðu ráð, sem hann gaf mér hafi ég alltaf munað; þau hafa
fylgt mér í gegnum allar hættur í orustunum, og nú, á
dauðastundinni, bið ég elskulegan frelsara minn að blessa