Norðurljósið - 01.01.1984, Page 59

Norðurljósið - 01.01.1984, Page 59
NORÐURIJÓSIÐ 59 kæra, gamla sunnudagaskólakennarann minn; það er allt og sumt.“ Hann snéri sér að mér og sagði: „Nú er ég tilbúinn, læknir, og ég lofa þér að ég mun ekki einu sinni stynja á meðan þú tekur af mér handlegginn og fótinn, ef þú býður mér ekki klóróform.“ Ég lofaði því, en ég hafði ekki hugrekki til að taka hnífinn mér í hönd til að framkvæma aðgerðina nema að fara áður í næsta herbergi og fá mér dálítið áfengi til að herða mig upp, svo að ég gæti gert skyldu mína. Á meðan ég var að skera í gegnum holdið stundi Charlie Coulson aldrei, en þegar ég tók sögina til að saga í sundur beinið, setti drengurinn hornið á koddanum upp í munninn, og það eina sem ég gat heyrt hann segja var: „Ó, Jesús, blessaði Jesús, stattu hjá mér núna!“ Hann hélt loforð sitt og stundi aldri. Þá nótt gat ég ekki sofið, því að ég sá þessi mildu, bláu augu hvernig sem ég snéri mér, og þegar ég lokaði augunum, héldu orðin „Blessaði Jesús, stattu hjá mér núna!“ áfram að hljóma í eyrum mínum. Milli klukkan tólf og eitt eftir mið- nætti fór ég upp úr rúminu og hélt til spítalans, sem ég hafði aldrei gert áður nema ég væri sérstaklega kallaður; en slík var löngun mín að sjá þennan dreng. Þegar ég kom þangað var mér tilkynnt af sjúkraliðanum, sem var á næturvakt að sextán hefðu dáið af þeim sem engin von var um og verið bornir niður til líkhússins. „Hvernig er Charlie Coulson, er hann meðal hinna dauðu?“ spurði ég. „Nei, herra,“ svaraði sjúkraliðinn, „hann sefur rólega eins og smábarn.“ Þegar ég kom að rúminu þar sem hann lá, sagði ein hjúkrunarkonan, að um klukkan níu hefðu tveir með- limir úr U.S. Christian Commission („Bandarísku kristilegu nefndinni“) gengið um spítalann til að lesa og syngja sálm. Herpresturinn var með þeim og hann kraup á kné við rúm Charlie Coulsons og bað heita og hrifandi bæn. Á eftir, meðan þeir voru ennþá á hnjánum, sungu þeir „Jesus, Lover of My Soul“ („Lát mig flýja í faðminn þinn“), sem er öllum sálmum fegri, og Charlie söng með. Ég gat ekki skilið hvernig þessi drengur, sem hafði orðið að þola slíkan kvalafullan sársauka, gat sungið. Fimm dögum eftir að ég hafði tekið
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108
Page 109
Page 110
Page 111
Page 112
Page 113
Page 114
Page 115
Page 116
Page 117
Page 118
Page 119
Page 120
Page 121
Page 122
Page 123
Page 124
Page 125
Page 126
Page 127
Page 128
Page 129
Page 130
Page 131
Page 132
Page 133
Page 134
Page 135
Page 136
Page 137
Page 138
Page 139
Page 140
Page 141
Page 142
Page 143
Page 144
Page 145
Page 146
Page 147
Page 148
Page 149
Page 150
Page 151
Page 152
Page 153
Page 154
Page 155
Page 156
Page 157
Page 158
Page 159
Page 160

x

Norðurljósið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Norðurljósið
https://timarit.is/publication/128

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.