Norðurljósið - 01.01.1984, Side 77
NORÐURI.JÖSIÐ
77
Efnahagslegu áhyggjurnar, sem á okkur hvíla nú, eru
smáræði í samanburði við andlegu neyðina, sem skapast
hefir af sænskri „menningarpólitík“ nú á síðustu tímum.
Nú á dögum er ekki unnt að eiga samtal við sænskan
stúdent sem sæmilega menntaðan mann. Dálítið kann hann í
ensku, en ekkert í þýsku eða frönsku. Hann hefir enga hug-
mynd um latínu og sögu Rómverja. í hugtakaheimi Biblí-
unnar skilur hann ekki neitt, né heldur í fornri eða norrænni
goðafræði. Afarlítið veit hann í mannkynssögu ...
Verra er þó að skólinn hamrar það inn í ungu kyn-
slóðina, að hún sé sjálfráð um siðferði sitt. Oss er sagt það frá
háskólanum í Lundi, að unglingar hafi nú sín fyrstu kynmök,
ekki um fjórtán ára aldurinn, heldur ellefu ára. Þá er hægt að
skilja, hvað gerist. Strákarnir álíta, að þeir megi gjöra, hvað
sem þeir vilja, í sambandi við stúlkur. Og þær láta eftir
óskum þeirra, svo að ekki verði litið á þær sem einhverja
eftirbáta.
Stolpe hefir svo eftirfarandi kjarnyrði til viðbótar. Aldrei
hefir, í sænskri sögu, átt sér stað önnur eins hnignun í and-
legu, menningarlegu og siðferðislegu tilliti, vegna þrýstings
frá yfirvöldum og skólakerfinu. Fyrirbærið er einstætt á
okkar tímum, því að það á sér ekki stað í nokkru öðru landi.
Við finnum, að á bak við þessa þróun er grundvallarregla ein
vond: Gættu þín við áreynslu, gerðu engar kröfur, hvorki til
sjálfs þín eða annarra. Lagaðu siðferðið eftir staðreyndum,
sem merkir: Ósigur hinna veikgeðja eða minni máttar.
Skoðaðu bara glæpaferil nútíma æskunnar : Árásir á eft-
irlaunafólk og konur á öllum aldri, eyðileggingar í skólun-
um. Það er hræðileg manngerð, er skapast í nýju skólunum,
líka af fjölmiðlum með árása- og saurlífismyndunum.
Gleymum ekki heldur fjöldamorðum á lifandi fóstrum, sem
talin eru nauðsynleg, náttúrleg og ágæt.
Sven Stolpe var einnig spurður: Hvaða forsendur eru fyrir
því, að andleg vakning komi, sem geti náð djúpt og hafi í för
með sér afleiðingar þær, er séu bæði siðferðislegar og
menningarlegar?
Hér kemur svar hans: Ég sé alls staðar merki og tákn, sem
tákna nýja þrá eftir andlegu lífi.... Ég er ekki órólegur.