Norðurljósið - 01.01.1984, Page 80
80
NORÐURIJÓSIÐ
langar mig að spyrja þig: Hefur þú heyrt um Jesúm? Já, segir
þú, það hef ég oft. En segðu mér þá, hefur þú farið til hans?
Ef ekki, þá verður þú að reyna það, eins og skáldið sagði:
Hver er sá er getur hjálpað, aðeins einn, Guðs almáttugi
sonur Jesús einn. Þú segir e.t.v. að þig skorti djörfung. Það er
vel mögulegt, en konan sem við lásum um, skorti líka djörf-
ung, samt kom hún til hans, og hvers vegna? Vegna þess að
ástand hennar var alvarlegt. Hún vissi, að hún yrði að nota
tækifærið á meðan það gæfist, ef hún ætti að eiga nokkra von
um lækningu. Hvernig er með þig, er þessi spurning þér
alvörumál? Ætlar þú að fara til hans? Það stendur ritað, að
allir sem til hans komu urðu heilir. Hann er hinn sami í dag.
Sjálfur segir hann: í því er hið eilífa líf fólgið, að þeir þekki
þig, hinn eina sanna Guð og þann sem þú sendir, Jesúm
Krist.
Annað dæmi stendur skrifað í Lúk. 15. kap. Það er vel
þekkt og er oft notað. Jesús sagði sögu um ungan mann, sem
var farinn að heiman. Til að byrja með, á meðan peningar
voru til, þá lifði hann í gleði og glaumi. Engar áhyggjur og
engin heimþrá. En er tíminn leið og hann var farinn að gæta
svínanna, reyndi hann að kyngja fæðunni, sem svínunum var
ætluð. Þá varð honum að lokum ljóst, að lífið var tilgangs-
laust, ef því yrði lifað á þennan hátt. Þá fór hann heim aftur
til föður síns. Staðreyndin var samt sú, að hann var alveg eins
langt í burtu frá föðurnum, þegar hann lifði í velgengni. Á
þeim dögum þráði hann ekki að komast heim til föðurhús-
anna. Þannig fer oft fyrir okkur hér í lífinu. Þegar allt gengur
vel, erum við samt sem áður langt í burtu frá Guði, ef við
þekkjum ekki Jesúm sem frelsara okkar.
En þá er spurningin, hvernig get ég öðlast frið við Guð? Þú
hefir eflaust heyrt um Jesúm, og þú veist mætavel, að hann
tekur feginn á móti einum og sérhverjum, sem til hans kem-
ur.
Gerðu bara eins og konan: Snertu í trú yfirhöfn hans.
Reyndu, hvort þú ert ekki velkominn til hans. Spurningin er
ekki um þína miklu trú, heldur hvort sá sem þú trúir á er
nógu mikill frelsari.