Norðurljósið - 01.01.1984, Side 101
NORÐURIJÓSIÐ
101
oft er sagt: Ef þú berð áhyggjur, treystir þú ekki. Þetta er satt.
Áhyggjur sjúga lífsorku í sig, ræna oss allri gleði í Guði.
Guðstraustið varðveitir lífskraftinn, gjörir lífið gleðiríkt. Vér
vitum eitt: með áhyggjum breytum vér engu. En með
traustinu fáum vér furðuverk Guðs að sjá. Svo lengi sem vér
erum á jörðunni þurfum vér að hafa samskipti við jörðina.
Og lífið, sem Kristur stjórnar, verður einnig að erfiða, án
áhyggju, fyrir viðhaldi sínu. „Ég vil, að þér séuð áhyggju-
lausir,“ merkir hvorki kæruleysi né áhyggjur. Og ef vér þá, „í
öllum greinum, gerum óskir vorar kunnar Guði með bæn og
beiðni ásamt þakkargjörð, þá mun friður Guðs, sem er æðri
öllum skilningi, varðveita hjörtu vor í Kristi Jesú.“
Hvílir ekki höfðingjadómurinn á herðum hans? — Guðs
almáttugu herðum? — og herðum hans, sem ber heimana
uppi, sem eru til? Ætti þá nokkur efaspurning að vakna hjá
okkur, sem lúti að þvi: hvort hann geti haldið okkur uppi í
lífinu? Heimurinn okkar er fullur af þjáningum. Því er sár
þörf hans á frelsara, er byrðarnar beri. Annars nálgast kvíð-
inn kjarkleysi og ótti, sem nálgast getur örvæntingu. Drottinn
hleður aldrei á okkur áhyggjum. Heldur ber hann okkur uppi
dag eftir dag. Áhyggjur eru afleiðingar syndar í heiminum.
En Frelsarinn friðþægði fyrir syndir. En þar sem hann hefir
borið þjáningar vorar og harmkvæli, þá er honum kleift: að
létta þessari tvöföldu byrði af sálinni. Byrðin er hans, en er
ekki okkar. Ef einhverjum finnst, að byrði hans sé meiri en
hann fái borið, þá minnist hann þess, að Kristur hefir auka
herðar til að bera hana á, sem hann getur boðið, að hún verði
borin á.
„Verið því ekki áhyggjufullir um líf yðar, hvað þér eigið að
eta, eða hvað þér eigið að drekka, ekki heldur um líkama
yðar, hverju þér eigið að klæðast. Er ekki lífið meira en
fæðan og líkaminn meira en klæðnaðurinn? Lítið til fugla
himinsins, þeir sá ekki né uppskera, og þeir safna heldur ekki
í hlöður, og yðar himneski Faðir fæðir þá; eruð þér ekki
miklu fremri en þeir? en hver af yður getur með áhyggjum
aukið einni alin við hæð sína? Og hví eruð þér áhyggjufullir
um klæðnað? Gefið gaum að liljum vallarins, hversu þær
vaxa; þær vinna ekki, og þær spinna ekki heldur; en ég segi