Vísir - 14.12.1960, Page 99

Vísir - 14.12.1960, Page 99
verðið var lilægilega lágt, svo að mikið magn ])urfti til að rísa undir útgáfunni, og lausa- söluverð hinna fyrstu dagblaða var aðeins 3—5 aurar eintakið. Verkefni hinna fyrstu dagblaða var fyrst og fremst aimennur fréttaflutningur, innlendur og útlendur. Þau fóru einnig snemma að segja frá innlendum iþróttakeppnum, málverkasýn- ingum, hljómleikum og leiksýningum, ítarlegar en áður hafði verið gert i vikublöðunum, og fengu til þess hæfa menn. En þessi fyrstu ár voru barningsár og allt þurfti að spara; rit- stjórar og blaðamenn voru illa launaðir en höfðu mikla vinnu, og sjaldgæft var að rit- laun væru greidd fyrir aðsent efni. EFTlFt STRÍÐIÐ. Segja má að öll skilyrði til blaðaútgáfu hafi gerbreytzt á stríðsárunum. Eftir stríð hefur fólk haft úr miklu meira að spila en áður, og það lýsti sér m. a. i þvi, að kaupendafjöldi blaðanna óx og að hægt var að selja blöðin hærra verði en áður. Við þetta kom vaxtar- hugur i blaðaútgefendur og þeir f-óru að stækka blöðin, unz þau urðu — miðað við kaupenda- fjölda — stærri en tilsvarandi blöð á norður- iöndum. Hvernig verja þá blöðin þessu mikla rúmi sinu? Fyrst og fremst til stóraukinnar frétta- þjónustu, erlendrar og innlendrar, ýmist með símskeytum eða fréttagreinum. Aðstaðan til þessa liefur stórbatnað, bæði vegna lægri sím- skeyta gjalda og einkum þó vegna daglegra flugsamgangna við útlönd. íslenzkir fréttamenn geta unnið efni úr erlendum biöðum, útkomn- um samdægurs, og birt það næsta dag. Og í útvarpinu er hægt að hlusta á öll markverðari erlend tiðindi. Skiiyrðin til erlendu frétta- þjónustunnar eru þvi ekki sambærileg við það sem var. Ég er ekki frá þvi, að blöðin verji meira rúmi en vert er handa útlendu fréttunum. Það er að segja hinum sundurlausu skeytum frá degi til dags er segja frá rás viðburða í slitrum, þannig að almenningur áttar sig ekki á hinum eiginlega gangi málanna. Hver verður t. d. fróðari af að iesa öll skeytin frá Kongó i sumar? Vafalaust mundi öllum almenningi gagnlegra að fá ekki nema fimmtunginn af öllum skeytunum, en í staðinn yfirlitsgreinar yfir málefni þau, sem ávallt eru á döfinni og viðhorfin i málum þeim, sem varða fram- vindu veraldarinnar. Það væri til bóta að stytta ýms skeyti en fjölga yfirlitsgreinunum. Um landsins gagn og nauðsynjar: greinar um það sem er að gerast til góðs í þjóðfélaginu, flytja blöðin miklu meira efni en áður var gert. Fólki er vorkunnarlaust að fylgjast vel með í því. En oft er leitt að sjá metinginn um, hvaða flokki þessi eða hin framför sé að þakka. Sá metingur verður stundum rúm- frekur i sumum blöðum, en hefur þó það til síns ágætis að hann getur komið fólki til að brosa að gorturunum. — Ágætur blaðamaður sagði einhvern tíma, að efni góðs blaðs yrði að vera að hálfu leyti það sem fólk þyrfti að lesa, en að liálfu það sem það vildi lesa. En nú er það svo, að lesendurnir eru ólíkir að smekk, sumir vilja lesa alvarlegar greinar um landsmál og kaupa blöðin þeirra vegna, aðrir hlaupa yfir ailt sem stjórnmálakeimur er að, en sökkva sér niður í hið léttara hjal. En stórtíðindi, svo ' sem um jarðskjálfta, eldgos eða stjórnmála- lineyxli lesa allir. Hneyxlismálin eru allra uppáhald — líka þeirra, sem þykjast liafa skömm á þeim. Léttara hjalið er orðið rúmfrekt í blöðunum, sömuleiðis æsifregnir af atburðum, sem i sjálfu sér eru lítils virði. Það verður að skoðast sem dálkafylling út úr neyð, er dagblöð eyða heilli opnu í hverju blaði til að segja frá hjónaskilnaðarmálum frægra kvikmyndaleikara eða öðru álika ómerkilegu. En af slíku efni er tiltölulega meira í íslenzkum dagblöðum núna en í dagblöðum norðurlanda. Slík skrif eru einkum lesin af ákveðnum hiuta þjóðarinnar, einkum unglingum, sem sækjast eftir æsifregn- um. Virðist sá hópur ískyggilega fjölmennur með þjóðinni,, ef dæma skal eftir þeim fjölda sorptímarita, sem orðin er á boðstólum hjá hinni fámennu þjóð. En það er langt undir virðingu nokkurs dagblaðs að keppa við slik rit. BLA ÐA MENNIRNIR. Laust eftir aldamótin stofnuðu þáýerandi ritstjórar Reikjavikurblaðanna „Blaðamanna- féiagið“. Ég man að nefna af þeim Björn Jónsson, Brietu Bjarnliéðinsdóttur (ritstjóra Kvennablaðsins), Jón Ólafsson, Einar Hjörleifs- son og Þorstein Gíslason. Auk þess munu þeir Guðmundur Björnsson og Sigfús Eymunds- son hafa verið i félaginu, sem blaðaútgefendur. Félagið lifði ekki lengi, en innan þess vébanda varð „blaðamannaréttritunin“ til. I ])á daga voru meiðyrðamál tið milli ritstjóranna, svo að dómstólar og sáttanefndir urðu fyrir ónæði af því. Til þess að ráða bót á þessu var stofn- aður gerðardómur, sem ábyrgðarmenn blaða skyldu skjóta meiðyrðamálum til og hann skera úr. En þetta varð banabiti félagsins í það skiptið. Fyrsti maðurinn, sem dæmdur var í sekt, borgaði ekki, heldur fór úr félaginu og i riðlun þeirri, sem varð i stjórnmálunum á árunum eftir 1906 (er blaðamannaávarpið kom út), lognaðist félagið útaf. Blaðamannaávarpið flutti kröfu um að Is- land yrði „frjálst sambandsland við Danmörku, og skal með sambandslögunum, er ísland tekur óháðan þátt í, kveðið á um það, hver málefni íslands hljóta eftir ástæðum landsins að vera sameiginlegt mál þess og ríkisins. í öllum öðrum málum skulu íslendingar vera einráðir með konungi um löggjöf sina og stjórn, og verða þau mál ekki borin upp fyrir konung i rikisráði Dana.“ Undir ávarpið skrifuðu Benedikt Sveinsson, Björn Jónsson, Einar Hjörleifsson, Hannes Þorsteinsson, Sigurður Hjörleifsson og Skúii Tboroddsen, og var hér Framhald á bls. 106. Afmælisblað VÍSIS VÍSIR 50 ÁRA 99
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108
Page 109
Page 110
Page 111
Page 112
Page 113
Page 114
Page 115
Page 116
Page 117
Page 118
Page 119
Page 120
Page 121
Page 122
Page 123
Page 124
Page 125
Page 126
Page 127
Page 128
Page 129
Page 130
Page 131
Page 132
Page 133
Page 134
Page 135
Page 136
Page 137
Page 138
Page 139
Page 140
Page 141
Page 142
Page 143
Page 144
Page 145
Page 146
Page 147
Page 148
Page 149
Page 150
Page 151
Page 152

x

Vísir

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.