Vísir - 14.12.1960, Síða 151

Vísir - 14.12.1960, Síða 151
Sölulaun fyrir 200 eintök nægðu / 20 bíóferðir. Einn af fyrstu blaðsöludrengjum Vísis var Steingrímur Kl. GuSmundsson málari að Bergs- stöSum viS Kaplaskjólsveg i Reykjavík. Hann er fæddur árið 1900 og stendur því rétt á sextugu. — Ég er barnfæddur Reykvíkingur, sagði Steingrímur í viðtali við Vísi, og var í hópi fyrstu blaðsöludrengja Visis. Ég man aS ég var tíu ára gamall þegar ég byrjaði að selja blaðið, og það gefur einmitt til kynna að ég hafi selt það strax á fyrsta útkomuári þess. — HvaS kostaði blaðið þá? — Þrjá aura og af þvi fengum við einn eyri í sölulaun. — Ekki hefur það verið mikið. — Mikið! Það var nú bara alls ekki litið. Þetta var ein af fáum tekjulindum drengja í Reykjavík á þeim árum og þótti það stórkost- legt að geta unnið sér inn eyri. Þeir þurftu ekki endilega að vera margir, enda voru aurar pen- ingar i þann tíð. Það eru þeir ekki nú. — HvaS seldu blaðsöludrengirnir þá til jafn- aðar af blöðum á dag? — Það var ærið misjafnt. Fór víst eftir ýmsu, veðrinu, hvaða atburðir lágu í loftinu og hvað stóð í blaðinu. Annars kölluðum við upp markverð tíðindi, ef þau voru fyrir hendi. Það jók söluna. — HvaS munið þér eftir mestri sölu hjá sjálf- um yður á einum degi? — Ég man að ég seldi mikið þjóðhátíðardag- inn, 17. júní 1911. Vísir gaf þá út mjög skraut- legt þjóShátíðarblaS með mynd af Jóni Sigurðs- syni og nokkrum kvæðum helguð honum eftir þó Þorstein Erlingsson og GuSmund Guðmunds- son. Það var á betri pappír en blaðið er venju- lega prentað á og auk þess prentað í tveim litum. Af þessu blaði seldi ég um 200 eintök og fékk tvær krónur fyrir, en það jafngilti þvi að ég gæti farið 20 sinnum á bíó fyrir sölulaunin. Þá kostaði aðeins 10 aura aðgöngumiðinn á bíó. 1'il þess að komast 20 sinnum í bíó fyrir eins dags sölulaun á dag nú, þyrfti barn að fá 120 krónur i sölulaun. Á þessu sést að kaupið var alls ekki svo lítið miðaS við peningagildi nú. — ÞaS er satt, það er meira en manni gæti sýnst í fljótu bragði þegar aðeins upphæðin '>r nefnd. — En það var ekki þar með búið, því auk þess fékk ég verðlaun, höfðingleg verðlaun meira að segja, fyrir mesta sölu. — Hver voru verðlaunin? — Þau voru úr. Ekkert man ég hvaS varð af því, en svo mikið er víst að ég á það ekki lengur. ÞaS man ég hinsvegar að ég var stoltur þegar ég kom heim til mín um kvöldið með úr i vasanum og tvær krónur að auki. Þann dag var ég ríkur maður. — Kom það oftar fyrir að verðlaun voru veitt? — Já, mig minnir að Einar hafi verð- iaunað okkur söludrengina þegar honum þótti einhver skara fram úr, eða þegar sérstök tilefni gáfust til. — Þetta hefur gefið tilefni til harðrar sam- keppni? — Það var oft mikið kapp i okkur strákunum, einkum þegar við bjuggumst við mikilli sölu. Það var líka alltaf mikil sala í kringum helgar. Ég hafði þann háttinn á að flýta mér hvaS Afmælisblað VÍSIS mest ég mátti á veitingastaði bæjarins og i bankana. Þar var alltaf örugg sala ef maður gat orSið á undan öðrum. Auk þess liafSi ég fasta viðskiptavini hingað og þangaS í bænum, sem keyptu aðeins af mér, en ekki öðrum. — Hvað voruð þið lengi að selja blaðið á hverjum degi? — ViS vorum sjaldan lengi. Oftast 2—3 tíma á dag. Það svaraði yfirleitt ekki kostnaði að dorga lengur. — En voru það einvörðungu drengir sem seldu? — Að langmestu leyti. Ég man aðeins eftir einni stúlku, hún hét SigríSur og var, að mig minnir, eitthvað fötluð, en hún fékkst við sölu og bar víst blaðið út líka. Frá hrakningum skipshafnarinnar á „Eos.“ í gær kl. 5 síðdegis var sjóréttarpróf haldið yfir skipstjóra og skipshöfn af skipinu „Eos.“ Kom þá í Ijós, að þeir höfðu lent í hinum mesta lífsháska og mannraunum og mátti heita mildi, að þeir héldu allir lífi. Ikipið fór frá Hafnarfirði 19. þ.m. og komst klakklaust fyrir Reykjanes. En aðfaranótt 21. um kl. 2 gerði svo mikið aftakaveður, að ekki varð við neitt ráðið. Misstu þeir þá stjórn á skipinu og virtist svo um tíma, sem skipið ætlaði að ganga undir. Tóku þá seglin að rifna, hvert af öðru, en framreiðinn, sem var nýr, slaknaði svo mikið, að horfur voru á, að hann myndi slá mastrið úr skipinu. StórreiSinn bilaði einnig talsvert, svo að ekki var annað sjáanlegt um tima, en mastrið mundi brotna þá og þegar. Klukkan um 5 fór veðrinu heldur að slota og var þá farið að aðgæta, hvort leki hefði komið að skipinu, og kom þá i ljós, að tals- verður sjór var kominn i það. Vildu skipsmenn þá reyna að dæla, en dælurnar voru i ólagi, og vinddælan, sem mest var treyst á, hafði öll brotnað í veðrinu svo ekki var viðlit aS gera við liana. Fleiri bilanir komu i Ijós, og með þvi engin tiltök voru að gera við allt í rúm- sjó, sem bilað hafði, þá var siglt af stað þegar stjórn náðist á skipinu. Var lensað austur, þvi að Vestmannaeyjar var nú einasta höfnin, sem tök var að ná. Um kl. 10 árdegis sáu þeir Vest- mannaeyjar fyrir stafni og var þá tekið að hægja. Settu þeir þá upp öll segl, sem þeir gátu og stýrSu til Eyja, en um kl. 5 siðdegis lyngdi og voru þeir þá nálægt 3 fj. m. norð- vestur af eyjunum. En brátt fór aS hvessa af suðaustri og var þá slegið undan. Kl. 6—7 reyndu þeir að vekja eftirtekt á sér með neyðarmerkjum (blysum), en enginn tók eftir því. Um kl. 8 var komið suðaustan rok og sigldu þeir þá undan, en brátt lierti veðrið svo mjög, að segl þau sem eftir voru, fóru í tuskur og fylgdi þessu veðri stórsjór, þrumur og eldingar. Einni eldingu sló niður í skipið og hitti skipstjora og tvo --------------- Rabbaö v/ð Stein- grím Guðmundsson málara, einn fyrsta söludreng Vísis. — Komust þér í nokkur nánari kynni við Einar Gunnarsson? •—■ Já, ég réðst sem sendisveinn hjá honum nokkru seinna. Fór þá í allskonar sendiferðir, m. a. sótti ég handrit til ýmissa, sem skrifuSu í blaðið, þ. á m. GuSmundar skólaskálds, Þorsteins Gislasonar og fleiri. Mér var jafnan tekið vel hjá þessum mönnum og likaði prýðis- vel við þá. Sama var um húsbóndann að segja, hann var ágætismaður. menn aðra, en engan þeirra sakaði til rnuna og má það merkilegt heita. Allt í einu datt i dúnalogn litla stund, en fór svo að hvessa af suðvestri. Var þá skipinu haldið upp að vindi. Um kl. 3 um nóttina var kominn álandsstormur, og rak skipið til lands, og voru þá gefin neySarmerki seinni liluta nætur. Um kl. 6 árdegis kom enski botnvörpungur- inn Marz A. Johnsen (skipstjóri Nielsen) þeim til hjálpar og fylgdi þeim þar til bjart var orðið. Ekki treystist liann til að draga skipið til hafnar, en bauðst til að fara til Eyja og reyna að ná í björgunarskipið, en með þvi að skipið átti þá svo skammt til lands, sá hann að enginn tími væri til þess og vildi aS skipsliöfnin yfirgæfi „Eos“. Var þá ekki annað ráð vænna fyrir höndum og skaut hann út björgunarbáti til þeirra, þvi skipsbátur „Eos“ hafði laskast, og gengu skipsverjar af „Eos“ allir i bann. Var það þó ekki auðsótt því sjór var mikill, en Englendingar helltu olíu i sjóinn og gerSu sér allt far um að lijálpa sem bezt. Sumum skipsverja tókst að hafa nokkuð af föt- um sínum með sér, en aðrir misstu allt, sem þeir höfðu meðferðis. Þetta mun hafa verið um hádegi á fimmtudag og var svo beðiS hjá barkinum, ef vera mætti, að honum yrði bjarg- að, en um kl. 4 var hann kominn upp i brim- garð og var þá haldið til Reykjavíkur. Skip- stjóri á „Eos“ var DavíS Gíslason, en 1. stýri- maður Björn Árnason. (25. janúar 1920). Innbrot. ÞaS var aðfaranótt föstudagsins 16. þ. m. í ÖIIu þrumuveðrinu, aS brotizt var inn i geymsluskúr Ástu Árnadóttur málarameistara, og þaðan stolið talsverðu af kjöti. Skúrinn er áfastur við húsið, en gengið inn í hann utan- verðu frá. í húsinu býr aðeins kvenfólk og börn — ekkjur og 3 börn — og fyrirvinnan er kvenmaður. En karlmaður stelur á nætur- þeli björginni þeirra. (21. janúar 1920). Úr gömlum Vísisblöðum. VÍSIR 50 ÁRA 151
Síða 1
Síða 2
Síða 3
Síða 4
Síða 5
Síða 6
Síða 7
Síða 8
Síða 9
Síða 10
Síða 11
Síða 12
Síða 13
Síða 14
Síða 15
Síða 16
Síða 17
Síða 18
Síða 19
Síða 20
Síða 21
Síða 22
Síða 23
Síða 24
Síða 25
Síða 26
Síða 27
Síða 28
Síða 29
Síða 30
Síða 31
Síða 32
Síða 33
Síða 34
Síða 35
Síða 36
Síða 37
Síða 38
Síða 39
Síða 40
Síða 41
Síða 42
Síða 43
Síða 44
Síða 45
Síða 46
Síða 47
Síða 48
Síða 49
Síða 50
Síða 51
Síða 52
Síða 53
Síða 54
Síða 55
Síða 56
Síða 57
Síða 58
Síða 59
Síða 60
Síða 61
Síða 62
Síða 63
Síða 64
Síða 65
Síða 66
Síða 67
Síða 68
Síða 69
Síða 70
Síða 71
Síða 72
Síða 73
Síða 74
Síða 75
Síða 76
Síða 77
Síða 78
Síða 79
Síða 80
Síða 81
Síða 82
Síða 83
Síða 84
Síða 85
Síða 86
Síða 87
Síða 88
Síða 89
Síða 90
Síða 91
Síða 92
Síða 93
Síða 94
Síða 95
Síða 96
Síða 97
Síða 98
Síða 99
Síða 100
Síða 101
Síða 102
Síða 103
Síða 104
Síða 105
Síða 106
Síða 107
Síða 108
Síða 109
Síða 110
Síða 111
Síða 112
Síða 113
Síða 114
Síða 115
Síða 116
Síða 117
Síða 118
Síða 119
Síða 120
Síða 121
Síða 122
Síða 123
Síða 124
Síða 125
Síða 126
Síða 127
Síða 128
Síða 129
Síða 130
Síða 131
Síða 132
Síða 133
Síða 134
Síða 135
Síða 136
Síða 137
Síða 138
Síða 139
Síða 140
Síða 141
Síða 142
Síða 143
Síða 144
Síða 145
Síða 146
Síða 147
Síða 148
Síða 149
Síða 150
Síða 151
Síða 152

x

Vísir

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.