Tímarit íslenzkra samvinnufélaga - 01.10.1923, Side 33
Tímarit íslenskra samvinnufélaga. 79
vorum því fylgdarmannslausir alla leið norður í Hrúta-
fjörð. Var okkur að þessu bagi og leiðindi, og gátum því
minna kynst hinum gróðurríku og fögru héruðum Borgar-
fjarðarsýslu en við hefðum viljað.
Eins og áður er sagt, lögðum við af stað frá Tryggva-
skála 22. júní, til Reykjavíkur. þá var lélegur hagi víða
hér á Suðurlandi fyrir hesta, þó komið væri fast að Jóns-
messu. pegar við komum til Reykjavíkur um kvöldið, leit
ekki vel út hjá okkur með að fá haga handa hestunum; við
reyndum það bæði hjá bóndanum í Ártúnum og á Bústöð-
jm, en fengum afsvar. Leituðum við því á náðir Dýra-
^trndunarfélagsins um að útvega okkur haga handa hest-
unum, og fyrir lipurð og dugnað ráðsmannsins, tókst okk-
ur að fá að láta þá í hina svokölluðu Bæj argirðingu. Við
getum ekki stilt okkur um, í sambandi við þetta, að geta
þess, að það er mjög bagalegt að geta ekki fengið sæmi-
lega haga fyrir langferðahesta, sem komið er með til höf-
uðstaðarins. En eins og nú er ástatt, er varla tiltækilegt að
koma þangað með hesta, nema þeir séu hafðir í húsi og á
heyi, en við það líður þeim ekki vel, þegar komið er fram
á sumar; þar að auki er það of dýrt, ef verið er með
marga hesta og viðstaða varir fleiri daga.
það eru því tilmæli okkar til hinna mörgu dýravina
í Reykjavík, að þeir beiti sér fyrir því, að bærinn útvegi
land, þar sem ferðamenn gætu fengið sæmilega haga fyrir
hesta sína. það mundu allir verða þakklátir fyrir og telja
höfuðstaðnum til sóma.
24. júní lögðum við af stað úr Reykjavík. Við fórum
Mosfellssveitarveginn. þaðan sáust ýmsir bæir, sem við
kunnum ekki að nefna, því að allir voru jafn ókunnugir á
þessum slóðum. Eftir tæpl. 2ja klukkustunda för komum
við að Grafarholti, til Björns hreppstjóra. þar er reisu-
legt íbúðarhús og snotur umgengni. þar varð töluverð við-
staða, því margt bar á góma, en Björn þægilegur og fjöl-
fróður.
Frá Grafarholti héldum við þjóðveginn upp að Stóra