Tímarit íslenzkra samvinnufélaga - 01.10.1923, Page 45
Tímarit íslenskra samvinnufélaga.
91
ir okkur alla sögustaði, sem nefndir eru í Vatnsdælu, sem
hann og margir aðrir virtust kunna spjaldanna milli.
Var þaðan riðið hjá Hofi, bæ Ingimundar gamla. Við
höfðum riðið fram dalinn að vestan og héldum út með
aftur að austan að Eyjólfsstöðum, og settumst þar að
glaðværri súkkulaði- og kaffidrykkju. Voru þar haldnar
margar og fjörugar ræður. Létu þar ýmsir í ljós, að Sunn-
Eyjólfsstaðir i Vatnsdal.
lendingar og Norðlendingar ættu að gera meira að því, að
blanda blóði en verið hefir, og mætti það teljast með fram-
förum; hefir þetta átt sér stað í Vatnsdal, og gefist vel.
Eftir þriggja tíma viðstöðu á Eyjólfsstöðum var hald-
ið að Sveinsstöðum; voru þá hestar okkar afþreyttir. Að
skilnaði voru sungin nokkur lög. Kvöddum við síðan þessa
höfðinglyndu Vatnsdæli með alúðarþakklæti fyrir daginn,
sem verður okkur ógleymanlegui'. þegar við spurðum bónd-
ann á Sveinsstöðum, sem fylgdi okkur að þingeyrum, hvað
hestageymslan kostaði, sagði hann þá skuld borgaða.
Loft var létt og blæjalogn þennan dag, og mátti segja,