Tímarit íslenzkra samvinnufélaga - 01.10.1923, Blaðsíða 89
Tímarit íslenskra samvinnufélaga. 135
áður klæddi landið „milli fjalls og fjöru“. Öxin hefir felt
gömlu trén, sauðféð bitið nýgræðinginn. Náttúran er enn
hin sama. Hvar sem girt væri kring um skógarkjarr og
verndað, mundi náttúran, á hverri öld, klæða landið nýj-
um „Hallormsstaðabjörkum“ og veita nógan raftvið, girð-
ingastaura og við til listiðnaðar og annara þæginda.
Hvað líður skógrækt ungmennafélaganna ? Misjafn-
lega hirtir smáreitir sjást á stöku stað með vanþroska
ungum kvistum. Vilja þau ekki fá hjá bændum, eða af jörð-
um landssjóðs, k j a r r s v æ ð i, s k ó g a r s t æ ð i, til að
girða og hjálpa náttúrunni til að hjálpa sér sjálfri?
E g i 1 s s t a ð i r. „Allir vegir liggja til Róm“. Á Hér-
aði liggja allir vegir til Egilsstaða, og þaðan niður á firð-
ina til kaupmanna. þar er aðalpóststöð og símastöð, og
liggja þaðan símalínur og póstleiðir í allar höfuðáttir. þar
eni krossgötur þjóðvega og aðalpósta. Egilsstaðir standa
við Lagarfljótsbrúna , og aðaldjúp Lagarins fært hverju
hafskipi. Hvergi hefi eg séð höfuðból betur í hérað komið,
hvergi betur húsað og stórmannlegar, og hvergi hitt bónda,
betur sjáandi landsins gagn og nauðsynjar, heldur en Jón
bónda Bergsson á Egilsstöðum, þótt blindur sé á líkams-
augum nú orðið.
Lengi hefir Jón Bergsson búið á Egilsstöðum, og rak
þar verslun nokkra stund. Honum hefir græðst mikið fé,
en þó mun verslun hans eigi síður hafa verið rekin vegna
héraðsnauðsynar en eigin hagnaðar, meðan kaupmenn vom
einráðir á fjörðum niðri.
Egilsstaðir minna að mörgu leyti á Grund í Eyjafirði.
En allólíkt hefir kaupmönnunum og bændum á þessum
stöðum gengið að skilja sinn tíma. Grundar k a u p m a ð-
u r i n n er einn ákveðnasti andstæðingur samvinnunnar í
sínu héraði. Egilsstaðabóndinn er einn áhuga-
mesti samvinnumaðurinn. Engan hitti eg þar gleggri og
skilningsbetri á samvinnumál og búnaðarmál. Verslunin
er niðurlögð. Tveir synir Jóns búa á Egilsstöðum, en þor-
steinn sonur hans er forstjóri öflugasta kaupfélagsins á
Austurlandi.