Andvari - 01.01.1907, Síða 19
Páll Jakob Briem.
13
aðist svo um allt land, eins og kunnugt er, til þess
sumarið 1906, og starfaði að útrýmingu fjárkláðans,
og heppnist það nú að útrýma fjárkláðanum alveg,
sem fyllsta von er til, þá er það aðallega P. Br. að
þakka, og er það eitt út af fyrir sig nægilegt til þess,
að nafn hans verði um langa stund haft uppi í sögu
landsins.
Eins og tekið hefur verið fram, bar P. Br. land-
búnaðinn jafnan mjög fyrir brjósti, og af þeirri um-
hyggju voru kláðaráðstafanir lians aðallega sprottnar,
en hann Ijet ekki þar við sitja. Þegar hann tók við
amtmannsembætti, var búnaðarslcólanum á Hólum
mjög farið að hraka, og hrakaði þar eptir með ári
hverju. Skólinn stóð beint undir yfirumsjón sýslu-
nefndanna og því aðeins óbeinlínis undir amtsráðinu;
liann lial'ði því nokkra skyldu til að sjá um þessa stofnun,
og fjekk því til leiðar komið, að hún árið 1899 var
sett beint undir stjórn amtsráðs Norðuramtsins.
Skömmu þar á eptir var svo öllu l'yrirkomulagi lians
breytt þannig, að aðaláherzlan var lögð á liina bók-
legu kennslu, en búið og jörðin var seld á leigu.
Yið þetta óx aðsókn mjög að skólanum, og liann
varð fyrirmyndarskóli og er það enn, en hverfur nú
á þessu vori undii unrsjón landsstjórnarinnar sem
bændaskóli, en lögin um bændaskóla eru alveg snið-
in eptir því fyrirkomulagi, sem amtsráðið hafði sett
á Hólaskóla.
Stjórn Búnaðarfjelags Suðuramtsins hafði skömmu
eptir 1890 farið þess á leit við anrtsráðin, að þau
stofnuðu í sanrbandi við sig búnaðarfjelag fyrir land
allt, en því var engu sinnt þá. Páll Brienr tók þessa
lrugnrynd upp, sanrdi frunrvarp til laga fyrir land-
búnaðarfjelag, og átti nrikinn þátt í því, að slikt
fjelag var stofnað unr aldamótin. Hann sýndi fje-
lagi þessu nrikinn áhuga, og það var faráðið, þegar