Andvari - 01.01.1907, Page 20
14
Páll Jakob Briem.
hann ílutti hingað suður haustið 1904, að hann tæki
við forstöðu þess næsta ár, en það fór á aðra leið.
Jafnframt þessu var hann ásamt Sigurði Sigurðs-
syni skólastjóra á Hólum stofnandi Ræktunarfjelags
Norðurlands, og var formaður þess, þangað til hann
fór suður; hann setli fjelagið þannig algjörlega á lagg-
irnar. Hann átti og upptök að því, meðan hann sat
í bæjarstjórn Akureyrar, alls 3 ár, að gróðrarstöð var
sett þar, sem hefur þrifizt ágætlega, enda eru þar hin
beztu skilyrði fyrir vexti og viðgangi slíkrar stofn-
unar.
Árið 1897 hóf Páll Br. að gefa út tímarit um
»lögfræði, löggjafai-mál og þjóðhagsfræði«, og nefndi
hann það »Lögfræðing«. Komu alls út 5 árgangar
af því riti, að mestu eptir sjálfan hann. í því er
ineðal annars mjög ýtarleg og vísindaleg ritgjörð um
ágang búfjár; er í henni skýrt frá, hvernig þessu
þýðingarmilda máli var skipað hjer á landi í forn-
lögum vorum Grágás og Jónsbók. Tilætlun hans
var að koma að endingu fram með frumvarp um,
hvernig þessu skyldi fyrirkomið nú, cn úr því varð
þó ekki af ástæðum, sem síðar skulu teknar lrarn.
IJá ritaði hann og ágæta ritgjörð um erfðaábúð,
sjálfsábúð og leiguábúð, sem varð til þess að skýra
mjög liugmyndir manna um þetta, sem verið höfðu
mjög óljósar, og man jeg sjerstaklega eptir því, að
einn gáfu- og skírleiksmaður norðan lands sagði við
mig, að hann hefði aldrei lesið neitt, sem væri svo
ljóst rakið frá rótum sem það mál.
Alþýðumenntamálið var í augum P. Br. ekki
einungis eitt hið þýðingarmesta mál, lieldur hið fyrsta
og hetzta, grundvöllurinn undir öllum framförum og
skilyrði fyrir framtíð landsins. »Lil‘andi trú og sönn
menntun eru máttarstoðirnar undir siðgæði og sið-
menning þjóðanna«, segir hann í ýtarlegri ritgjörð
um málið um menntun barna og unglinga í Lögfræð-