Andvari - 01.01.1907, Page 88
82
Um æskuárin
liraustari og hreinlátari, fríðari og ötulli. Heilbrigðis-
fræðin vekur virðingu fyrir líkamanum, kennir
mönnum að fara með hann, lifa skynsamlegar og
komast hjá mörgum sjúkdómum. — í sambandi við
heilbrigðisfræðina er oft kent allmikið um byggingu
líkamans og um líffærin.
Reikningur og stærðfræði eru einnig kend
á lýðháskólum og hvorttveggja heimfært upp á hið
daglega líf. í sumum lýðháskólum er kend land-
mæling, hallamæling og að gera uppdrátt af landi.
í Askov lýðháskóla verða nemendurnir miklu betur
að sjer í reikningi og stærðfræði en í nokkrum
skóla á íslandi.
Ennfremur er kent ýmislegt fleira, er helst má
að gagni verða í daglegu lífi, og vekja og glæða
nemendurna. Það er nokkuð mismunandi, hvað kent
er í ýmsum lýðháskólum, en aðalgreinarnar eru allstað-
ar hinar sömu. Jeg skal sem dæmi nefna, hvað ken
er í æðri lýðháskólanum í Askov:
Saga Norðurlandaþjóða, mannkynssaga, kirkju-
saga, bókmentasaga, goðasagnir og fornsagnir (hetju-
sagnir).
Saga acvinnuveganna í Danmörku.
Þjóðfjelagsfræði.
Landafræði.
Móðurmálið og aðrar norrænar tungur, þýska
og enska.
Um byggingu mannlegs líkama og eðlisfræði.
Reikningur og stærðfræði.
Heilbrigðisfræði.
Leikíimi.
Teikning.
Söngur.
Hannyrðir konum. (Handiðn er karlmönnum
kend nú i sjerstökum skóla í Askov).