Andvari - 01.01.1907, Síða 101
og islenskan lýðháskóla.
95
VI.
Flestir hinir almennu lýðháskólar í Danmörku
eru karlasltólar, eins og það er kallað, á vetrum
í fimm mánuði (nóvbr.—mars), en hjer um bil tíundi
hver lýðháskóli er þó bæði handa körlum og konum
á vetrum (samskóli). Sumarskólar (maí—júli) eru
aftur á móti handa konum einum; einnig eru nokkrir
lýðháskólar eingöngu handa konum. Einn þeirra,
lýðháskólinn í Ubberup, er æðri lýðháskóli; ágætur
skóli, að sögn kunnugra manna. í hann eru eigi
teknar fleiri en 40 stúlkur, og verður að sækja um
inntöku árið áður, því að eptirsóknin er svo mikil,
þótt skólinn sje að eins sjö vetra gamall.
í Askov stendur æðri lýðháskólinn í sex mánuði
hvern vetur (nóvbr.—apríl) og er bæði handa körlum
og konum, en í maí—júlí er þar almennur lýðháskóli
handa konum. Á Finnlandi eru llestir lýðháskólar
samskólar. Sumarið er þar stutt, og því segjasl
Finnar eigi geta haldið sumarskóla handa konum.
Þeir megi eigi missa þær frá sumarvinnunni. Á ís-
landi er sumarið styttra en í suðurliluta Finnlands.
Það væri eigi heldur gott lijá oss að taka verkfærar
konur frá vinnu í júní og júlí til þess að ganga í
skóla; en í maímánuði mætti að skaðlausu veita
konum kenslu í einhverjum greinum, sem að gagni
má verða. Jafnvel tveggja vikna kensla getur orðið
þroskuðum mönnum að miklu liði, ef um eittlivað
sjerstakt er að ræða. En mánaðarkensla er of lítið,
þá er um almenna mentun er að ræða. Fyrir því
væri æskilegast, að bæði konur og karlar gætu átt
kost á, að sækja góðan iýðháskóla á vetrum.
Þar sem þjettbýli er og hægar samgöngur, og
þar sem menn kunna að meta mentun, þar er bægt
að setja og halda lýðháslcóla. Lýðháskólarnir í Dan-
mörku og í öðrum löndum lifa aðallega af því, sem
nemendurnir greiða fyrir kensluna. í hinum æðri