Andvari - 01.01.1907, Síða 116
110
Fiskirannsóknir.
krossíiskur (Asteropsis), polýpar, sömu teg. og áður
og svampar.
Þaðain var aftur haldið inn á Leiruklett og varp-
an dregin þar þrisvar.
1. dráttur, kl. 8—9^/2 e. m. Varpan varð föst.
Afli: fáeinar ýsur og 1 steinbitur. Mergð af fyrnefnd-
um poljTpum.
2. drátlur, kl. 101/? e. m. til 2 f. m. Góður aíli
af vel feitum þorski og ýsu, 1 steinbítur.
í mögum fisksins var urmull af mjög stóru sand-
síli (Ammodijtes lancea Cuv.), 13—19 cm. á lengd og
mjög digru (feitu), hafði verið urmull af því í fiski
í Flóanum allan júlí. Fljótt á litið er sandsíli, sem
er svona stórt, mjög líkt smáu trönusíli (Ammod.
lanceolatus), enda af mörgum fiskimönnum nefnt því
nafni, en þegar það er fullvaxið verður það helm-
ingi lengra. En af því er ekki annar eins urmull
hér og af sandsílinu, sem er aðalfæða þorsks og ýsu
víða hér við land á sandbotni (leirbotni) á vorin og
sumrin.
3. dráttur, kl. 2x/2—f. m., 24. júlí. Lítill
aíli af sama tægi og áður. — Enskur botnvörpung-
ur var hjá okkur um nóttina og aílaði allvel sams-
konar fisk og mikið af smáýsu og smálúðu.
Var svo farið inn til Reykjavíkur og aftur kl. 4
út á Svið (Ásvörðuslóð), dýpi 10—20 fðm. Varpan
var dregin 4 sinnum.
1. dráttur, kl. 9—IIV2 e. m. Afli: dálítið af
þorski og stórýsu, allmikið af smáýsu, nokkrar smá-
lúður og kolar. Óæðri dýr: mergð að krossíiskum
(Asterias rubens).
2. dráttur, kl. IIV2 e. m. til 2 f. m., 25. júlí.
Afli: nokkuð af þorski og stórýsu, mikið af miðlungs-
og smáýsu, nokkrar smálúður, skarkolar, sandkolar,
skrápkolar og lýsur. Óæðri dýr: brimbútar (Cucu-
maria frondosa) og krossfiskar (Asierias).