Almanak Ólafs S. Thorgeirssonar - 01.01.1914, Page 32
22
ÓLAI'UR s. thorgeirsson:
1889—90 viS WesZey-háskóla. Árin 1890—1902 var
hann kennari í lögfræSi og stjórnvísi í Princeton.
Hann var gerSur forseti þess skóla 1. ágúst 1902. Var
hann fyrsti leikmaSur,er settur hafSi veriá í þá stöSu.
Þessarri trúnaSarstöSu sagSi hann upp 20. okt 1910.
Og í nóvembermánuói var hann kosinn ríkisstjóri í
New Jersey. Mikla eftirtekt hafSi hann vakiS meSan
hann var háskólastjóri. Því hann leitaSist viS aS
laga skólann sem mest eftir lýSstjórnarhugmyndum,
meS því að afnema ýms félög í efri deildum skólans,
þar sem einungis auSmannasynir áttu aSgang. UrSu
heilmargir auSmenn, er útskrifast höfSu þaSan í æsku,
honum mjög andvígir fyrir bragSið.
Snemma á æfinni tók Wilson aS gefa sig viS rit-
störfum. Hann var ekki nema 22 ára gamall, þegar
hann hafSi látiS birtast ritgerSir í tímariti einu1 2), þar
sem hann lagSi fram aSal-hugsanirnar, er hann síSar
kom fram meS í doktors ritgerS sinni. Bók hans um
ríkið2) varS þegar í miklu áliti. Hann reit bók um
sögu Bandaríkja3), sem út kom 1893, og aSra
stutta Bandaríkjasögu. Tvö bindi af ritgerðum um
bókmentaleg efni birtust eftir hann sama áriS4). Hann
reit ágæta æfisögu Washingtons 18965), og enn eitt
bindi af sögu Bandaríkja við alþýSu hæfi6). ÁriS
1908 birlust eftir hann fyrirlestrar um stjórnarskipan
Bandaríkjanna samkvæmt grundvallarlögum7).
Af þessu er auSsætt, hvílíkur starfsmaður Wilson
hefir veriS. En einkum er þaS eftirtektavert, hve
1) International Review 1879.
2) The State: Elements of Historical and Practical Poli-
tics, Sketch of Institutional History and Administration 1889.
3) Division and Reunion 1829—1889.
4) An Old Master og Mere Literature.
5) George Washington, A Biography,
6) History of the American People 1902.
7) Constituiional Government in the United States, 1908.