Almanak Ólafs S. Thorgeirssonar - 01.01.1914, Side 203
ÁGRIP
af reglugjörð um heimilisréttarlönd í
Canada Norðvesturlandinu.
Sérhver manneskja sem fjölskyldu hefir fyrir að sjá, og sérhver
karlmaður, sem orðinn er 18 ára, hefir heimilisrétt til fjórðung’s úr
,,section“ af óteknu stjórnarlandi í Manitoba, Saskatchewan eða
Alberta. Umsækjandinn verður sjálfur að koma á landskrifstofu
stjórnarinnar eða undirskrifstoícr í því héraði. Sarnkvæmt umboði
og með sérStökum skilyrðum má, faðir, móðir, sonur, dóttir, bróðir
eða systir umsækjanda, sækja um landið fyrir hans hönd á hvaða
skrifstofu sem er.
Skyldur.—Sex mánaða ábúð á ári og ræktun á landinu í þrjú ár.
Landnemi má þó búa á landi, innan 9 mílna frá heimilisréttarlandinu
og ekki er minna en 80 ekrur og er eignar og ábúðarjörð hans eða
föður, móður, sonar, dóttur, bróður eða systur hans.
I vissum héruðum hefir landneminn, sem fullnægt hefir lanatöku-
skyldum sínum, forkaupsrétt (pre-emption) að sectionarijprðungi
áföstum við latid sitt. Verð $3.00 ekran. Skyldur :—Vet ður að sitja
6 mátniði af ári á landi í 6 ár frá því að heimilisréttarlandið var
tekið að þeim tíma meðtöldum er til þess þarf að ná eignarbréfi á
heimilisréttarlandinu, og 50 ekrur verður að yrkja aukreitis.
Landtökumaður, sem þegar hefir notað heimilisrétt sinn og getur
ekki náð forkaupsrétti (pre-emption) á landi, getur keypt heimilis-
réttarland í sérstökum héruðum. Verð $3.00 ekran. Skyldur •
\ erður að sitja 6 mánuði á íandinu á ári í þrjú ár, rækta 50 ekrur
og reisa hús $300.00 virði.
W. W. CORY,
Deputy of the Minister of the Interior.