Jörð - 01.06.1942, Síða 18
dalshnúk. Þegar ofar keinur, er jökullinn ineð einstökum
sprungum, en ekki breiðari en svo, a'ð alltaf niá ganga yfir
þær, þar sem þær ganga saman. Frá Sandfellsheiði er um
Iveggja tíma gangur upp á jökulbrún, og er hezl að stað-
næmast þar og athuga yfirhorð jökulsins. Þarna uppi. í 1850
m hæð, er jökullinn alveg sléttur og að mestu liallalaus;
jökulslétta þessi er um þriggja kílómetra breið frá austri
til vesturs og fjögra kilómetra löng frá norðri til suðurs; upp
úr hjarninu standa ýmsir tindar og hnúkar. Norðvestan við
snæhreiðuna rís Hvannadalshnúkur upp úr hjarninu, 2119
m, og eru snarbrattir hamrar austan í honum og eru Jjeir
snjólausir vegna hallans. Hvánnadalslmúkur er um 260 metra
á hæð yfir jökulbreiðúna. Rótarfjallskambur er suðvestur
af jökulbreiðunni og suðaustur af honum koma svo Knapnar,
1851 m, en austur af lijarnbreiðunin eru svo ýmsir linúkar
þaktir jölcli og hallar jöklinum þaðan niður að Breiðamerkur-
sandi. Þar sem komið er upp á jökulsléttuna, er Hvannadals-
hnúkur i um tveggja km. fjarlægð, og er ekki rétt að koma
upp á jökulinn nær honum en þetta vegna þess, að dæld
kemur í jökulbrúnina á þessu svæði, og liallar jöklinum þar
niður, og eru þar efstu upptök Falljökuls; ef hann allsprung-
inn þarna, og langt upp í jökulhreiðuna ganga ljogadregnar
sprungur og eru þær víða þaktar snjó; ekki scsl í botn á
sprungum þessum. Ef snjór er ekki mjög gljúpur, þá er um
tveggja stunda gangur upp á Hvannadalshnúk frá jökulbrún-
inni. Hvannadalslmúkur er allur þakinn snjó, nema að aust-
anverðu, svo sem áður segir, og gengur jökullinn af honum
niður á aðaljökulinn; er hann venjulega mjög brotinn og
sést þá ágætlega gerð jökulsins, þvi að snjólögin eru lag-
skipt, eins og basalthamrar. Þegar eg kom að Hvannadals-
linúk í júlí 1988, var nýlega fallinn af honum mikill snjór,
og var jökulsárið um 70 metra á þykkt, og var einkennilegt
að sjá jökullögin; sum voru aðeins nokkra cm, en svo voru
önnur allt að meter á þykkt. Oftast má komast upp á linúk-
inn með því að fara yfir snjóbrýr, sem þekja sprungurnar.
Þegar upp á hnúkinn er komið, er liezt að ganga upp á aust-
ustu slrýtuna, því þar er Öræfajökull hæstur og útsýni hezt.
16 JÖRÐ