Árbók Háskóla Íslands

Årgang

Árbók Háskóla Íslands - 02.02.1923, Side 76

Árbók Háskóla Íslands - 02.02.1923, Side 76
66 VÖLUSPÁ skilning hefur í raun og veru E. A. Kock (Arkiv XXXV, 22—23), þótt hann vísi ekki til Bugge. En auk þess sem þessi skýring gerir ekkert ljósara en hin, má benda á atriði, sem mæla beint móti henni. Það er varla hugsanlegt, að Vanir gerðist svo ofstopafullir að vega eina af Ásynjum í sjálfri Háva höll. Aftur á móti eru dæmi til þess, að Æsir dræpi óboðinn gest (Þjaza jötun) fyrir innan ásgrindur. Yfir- leitt er ósennilegt, eftir því sem annars er kunnugt um Vani, að þeir hafi boðið Ásum ójöfnuð að fyrra bragði, og þó borið hærra skjöld til enda. Með því að skilja svo, verður Bugge lika að taka vísuna um Heiði burtu (og til þess er reyndar leikurinn gerður, sjá a. fr. bls. 22), því sú lýsing getur ekki átt við ásynju. Enn þá fjær skilningi Múllenhoffs fer Mogk (Arkiv XII, 281, Pauls Grundriss2 II, 579—80). Hann álítur Gullveigu þursakyns, senda af jötnum, goðum og mönnum til miska. Æsir og Vanir fari á hendur jötnum sem einn maður, en jötnar brjóti borg þeirra, vinni sigur og fái Freyju, sól og mána við friðarsamningana. Þá samninga rjúfi svo Þór. — Svo girnileg sem þessi skýring er að sumu leyti, get ég ekki fallist á hana. »Knáttu Vanir . . . völlu sporna« er varla hægt að skilja svo, að þeir (og Æsir) sé að hrökkva undan ofurefli jötna. Spurningin »hverr hefði lopt alt lævi blandit« o. s. frv., ætti heldur ekki við, ef þetta væri friðarsamningar. Þór gat heldur ekki átt kost á að rjúfa slíka samninga, eftir fullan ósigur. Mogk tekur ekkert tillit til sagnanna um Vana- styrjöldina i Yngl. sögu og borgarsmiðinn í Sn-E., en Snorri vissi of mikið, sem vér vitum ekki nú, nema frá honum, til þess að svo megi ganga fram hjá ritum hans. Það er að visu satt, að aðalefni Völuspár er fjandskapur jötna og goða, en það efni verður miklu áhrifameira, ef þeim lendir ekki saman i orustu fyr en í ragnarökum sjálfum. Skilningur Völuspár virðist einmitt vera sá, að goðin smáspillist fyrir ráð jötna, en þeir ráðist ekki framan að þeim fyr en fylling timans er komin. Styrjöld milli Ása og Vana, eins konar borgarastyrjöld í goðheimum, á mjög vel heima sem eitt stigið i hnignun goðalifsins. Divide et impera. Mönnum hefur lengi verið ljóst, að í frásögninni um styrj- öld Ása og Vana leynist endurminningar um baráttu tveggja siða: eldri norrænnar trúar, þar sem Njörður (Nerthus) og Freyr hafi verið aðalguðirnir, og nýrra trúarbragða, sem
Side 1
Side 2
Side 3
Side 4
Side 5
Side 6
Side 7
Side 8
Side 9
Side 10
Side 11
Side 12
Side 13
Side 14
Side 15
Side 16
Side 17
Side 18
Side 19
Side 20
Side 21
Side 22
Side 23
Side 24
Side 25
Side 26
Side 27
Side 28
Side 29
Side 30
Side 31
Side 32
Side 33
Side 34
Side 35
Side 36
Side 37
Side 38
Side 39
Side 40
Side 41
Side 42
Side 43
Side 44
Side 45
Side 46
Side 47
Side 48
Side 49
Side 50
Side 51
Side 52
Side 53
Side 54
Side 55
Side 56
Side 57
Side 58
Side 59
Side 60
Side 61
Side 62
Side 63
Side 64
Side 65
Side 66
Side 67
Side 68
Side 69
Side 70
Side 71
Side 72
Side 73
Side 74
Side 75
Side 76
Side 77
Side 78
Side 79
Side 80
Side 81
Side 82
Side 83
Side 84
Side 85
Side 86
Side 87
Side 88
Side 89
Side 90
Side 91
Side 92
Side 93
Side 94
Side 95
Side 96
Side 97
Side 98
Side 99
Side 100
Side 101
Side 102
Side 103
Side 104
Side 105
Side 106
Side 107
Side 108
Side 109
Side 110
Side 111
Side 112
Side 113
Side 114
Side 115
Side 116
Side 117
Side 118
Side 119
Side 120
Side 121
Side 122
Side 123
Side 124
Side 125
Side 126
Side 127
Side 128
Side 129
Side 130
Side 131
Side 132
Side 133
Side 134
Side 135
Side 136
Side 137
Side 138
Side 139
Side 140
Side 141
Side 142
Side 143
Side 144
Side 145
Side 146
Side 147
Side 148
Side 149
Side 150
Side 151
Side 152
Side 153
Side 154
Side 155
Side 156

x

Árbók Háskóla Íslands

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Árbók Háskóla Íslands
https://timarit.is/publication/588

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.