Búfræðingurinn - 01.01.1944, Síða 30
28
B Ú F I? Æ ÐINGURIN N
sáðskipta-graslendum í Danmörku lengur en 2—3 ár, og er
varla að vænla, að hann lit'i hér miklu lengur. I Noregi lifir
hann 3—4 ár, en tvö síðustu árin í'arinn að verða minna ríkj-
andi. Rauðsmárinn er tatinn tveggja til fleiri ára jurt. Hann
fcefur sterka djúpgenga stólparót. Stönglar og hlöð hærð. Smá-
blöðin egglaga eða öfugegglaga. Því nær heilrend, oft með
ljósum bletti i miðjunni. Axlabiöðin samvaxin blaðstöriglun-
um. Blómkollarnir rósrauðir. Er 20—70 cm hár.
Þetta er næringarríkt og gott fóðurgras, sem á vel við sáð-
skiptatúnrækt. Gefur mikla uppskeru, hæði hreinræktaður og
í blöndu með grastegundum, en þar virðist hann halda sér
betur en einn sér. Bezt er að rækta rauðsmára með vallar-
foxgrasi, hávingli og rýgresi, eklci grastegundum, sem hafa
jarðrenglur. fc’ræið þarf að smita með rótarbakteríum og fara
eins að og við sáningu á hvítsmára. Fastur húfjáráburður
hálmkenndur hefur átt vel við hann hér á Sámsstöðum, enda
hefur ræktun hans tekizt vel.
Reynd hafa verið snennnvaxin og seinvaxin afbrigði.
Snemmvaxið afbrigði eins og Ölot'te tidlig hefur reynzt verr
en norskir stofnar seinvaxnir. Snemmvaxni rauðsmárinn hefur
lifað hér aðeins 2 ár og gefið mun minni uppskeru en sá
siðvaxnari. Tilraunareitir, sem sáð var í 1938, gáfu eftir-
greinda uppskeru al' ha 1939:
1. Ötofle tidlig (danskur) .... 63 hestar í tveim sláttum
2. Hersnap .................. 76 — - — —
3. Molstad (norskur) ........ 126 — - —
Meðaltal 1939—1941 fyrir þessa 3 stofna: 1. 45 hestar,
2. 51 hestur og 3. 75 hestar.
Útsæði var 30 kg á ha, helmingur smári, og plægt niður
sem áburður 60 tonn liaugs á ha., 1939 enginn áburður, en
1940 og 1941 100 kg kalí, 200 kg súperfosfat, 75 kg Chile-
sallpétur á ha. Eftir 3 ár var mest af smáranum horfið, en þó
nokkur slæðingur af Molstad.
Meðaltal af tilraunum 1941 og 1942 varð þannig fyrir eflir-
taldar tegundir:
Venjuleg fræhlanda ......... 67 hestar af lia
Molstad .................... 78 —---------
Toten ...................... 85 — — —
Merkur (sænskur) ........... 75 — — —
Offer (sænskur) ............ 79 — — —