Búfræðingurinn - 01.01.1944, Síða 62
B U F li Æ Ð I N G U R I N N
GO
vandi að segja lil uin noktun þess við alla staðhætli til korn-
þroskunar.
Búfjáráburð má vel nota Lil kornyrkju, einkum hafra-
ræktar. Sauðatað hefur víða reynzt vel lil byggræktar, og mun
ol't vera hæfilegt að nota 15—18 smálestir á ha, vel malað og
jafnt dreift og herfað niður, áður en lcorninu er sáð. Einnig
má vel nota hrossatað eða gamla mykju til hygg- og hafra-
ræktar, og sýnir eftirfarandi tilraun meðalárangur af notkun
hrossataðs fyrir hyggrækt á árunum 1028—1032 eða meðal-
tal fimm ára.
Ábur'ðarnxagn á lia:
20 smál. hrossatað .
10 smál. hrossatað, 100 kg kali, 200
kg • súperfosfut, 150 kg saltpétur
200 kg kali, 300 kg kalksaltpétur
Kg korns af ba Kg liálms af Iia 1000 korna Þyifa'. g Grómagn »/o
2546 4901 34,8 90.6
' 2670 5865 35,4 90,4
■ 2742 5910 35,4 92,0
Þessi tilraun sýnir greinilega, að vel má notast við húfjár-
áburð við byggrækt og fá mjög góða uppskeru. Kornið þroskast
að vísu fyrr við rétt samsettan tilbúinn áburð, og gefur hann
i þessari tilraun dálítið meiri uppskeru. Það slcal þó tekið
fram, að 4 síðustu árin var byggið á forræktaðri jörð, og var
köfnunarefni það mikið, að byggið lagðist að mestu á reitun-
um, en þó hefur það náð góðum þroska í öllum 3 liðum til-
raunarinnar, eins og kornþyngdin og grómagnið ber vitni urn.
Margar tilraunir hafa verið gerðar með tilbúinn áburð til
byggræktar, síðan kornræktartilraunirnar hófust. Skal hér
stuttlega vikið að aðalniðurstöðum þeirra:
Kaliáburðtir virðist lítið nauðsynlegur á leirmóajarðveg og
gefur litla raun, Iielzt eykur kaliið hálmvöxt, en gefur lítinn
vaxtarauka af korni. Meðaltal af 5 ára tilraun, þar sem 200 kg
kalí var bætt við kalksaltpétur og supperfosfaf, gaf 42 kg korn
og 169 kg hálm fyrir hver 100 kg af 40% kalíi. Tvö fyrstu ár
tilraunarinnar var enginn árangur í korni af kalíáhurðinum,
en þá var tilraunin gerð á móajörð, en nokkur árangur fékkst
í aukinni hálmuppskeru, — kalíið borgaði sig elcki. -—■
Þrjú síðuslu árin var tilraunin gerð á framræstri mýrarjörð,
og þá varð af því töluverður árangur og svarar nokkuð til
þess, sem fæst af kalíi við byggrækt í Danmörku. Má því ætla,
að nauðsynlegt sé að bera kalí á mýrkenndan jarðveg og eins
sandjörð.
Hvað (osfórsxjruna áhrærir, er hún mjög nauðsynlegt nær-