Búfræðingurinn - 01.01.1944, Side 63
B Ú F R Æ Ð I N G U R I N N
<51
ingarefni lil áburðar við kornærkt, því að víða Varitar tilfinn-
anlega auðleysta fosfórsýru. Fosfórsýran hefur flýtt fyrir
korn- og grasfræþroskun hér undanfarin ár, og tilraunir liafa
sannað hér i stöðinni, að uppskeran verður þvi aðeins góð, að
hæfilega mikið sc borið á af henni lil kornræktar. Eftirfarándi
tilraun, sein gerð var á fremur mögru móalandi 1938—1942
samfleytt í 4 ár með vaxandi skámmta af 18% súperfosfati,
sýnir, hver árangur hefur orðið í korni og hálmi að meðaltali
i 4 ár, þar sem 3 ár var ræktað bygg og 1 ár hafrar:
Tafla V.
Uppskera á kg Vaxtarauki við FæstfyrirlOO
aflia superfosfat kg superfosfats
Aburður, kg á lia: korn hálnuir korn liálinur kornhnlmur
200 kali „ súp. 250 kíilks. . 1350 5502 ,, ,, ,,
200 — 150 — 250 — . 2100 0324 810 822 540 548
200 — 250 — 250 — . 2040 0344 090 842 270 337
200 — 350 — 250 — . 2350 0456 1000 954 280 273
200 — 450 — 250 — . 2434 7008 1084 1500 241 333
A þann jarðveg, sem tilraunin er gerð á, virðast hin liag-
fræðilegu takmörk vera um 350 kg súperfosfat til bijggræktar,
en þó að minna sé notað, verður munurinn litill, svo að oft
má með góðum árangri nota 250 kg súperfosfat á jörð, sem er
komin í rækt.
Aðrar tilraunir hafa sannað, að fyrir hver 100 kg súperfos-
fals með kalíi og saltpétri hafa fengizt 18ÍÍ kg korns og 391 kg
bálms. Það er því góð verzlun að nota þetta áburðarefni til
kornframleiðslu. Notað eitt sér, hefur superfosfat gefið um 49
kg af korni fyrir hver 100 kg áburðar, en engan hálm í vaxtar-
auka, miðað við 400 kg áburðarmagn á ha. Eftir dönskum til-
raunum hafa hver 100 kg superfosfats gefið iniklu minna
korn en raun hefur á orðið í tilraunum á Sámsstöðum.
Köfnunarefnið er nauðsynlegt næringarefni við kornfram-
leiðslu. Það styður að blaðvexti og eggjahvítumyndun i korn-
inu. Það korn, sem fær mikinn köfnunarefnisáburð, verður
ríkara af eggjahvitu en hitt, sem fær J)að af skornum skammti.
Tilraun, sem gerð var á Sámsstöðum 1934- 1930 eða í 3
sumur með vaxandi skammta af kalksaltpétri á forra'ktaðri
jörð í 1 og 2 ár, sýndi eftirfarandi árangur, talið i lcg korns og
háljiis fyrir 100 kg saltpéturs. Grunnáburður fyrir alla liði
tilraunanna var 200 kg af 40% kalíi og 450 ]<g súperfosfats.