Búfræðingurinn - 01.01.1944, Page 64
B Ú F R Æ1) I N G U R I N N
62
Áburðarinngn, kg á lia: Fyrir 100 kg saltpéturs
Kg kalksaltpcturs korn halniur
150 301 592
200 255 703
250 219 590
300 221 576
350 210 575
400 203 479
450 179 472 .
Sú uppskera, sem grunnáburðurinn gai' af ha (200 kg kalís,
450 kg superfosfats), var 1402 kg byggs og 2661 kg háhns. Et
þessar tölur eru bornar saman við það, sein fengizt hefur fyrir
saltpétur í Danmörku, er árangurinn sizt minni i þessari til-
raun en þar. Hin hagfræðilegu takmörk á notkun saltpéturs i
þessari tilraun virðast vera 200—300 kg á ha, en alveg upp í
450 kg á ha hefur áburðurinn borgað sig ágætlega, miðað við
verðlag á uppskeru og áburði á þeim tima, sem tilfaunin var
gerð. Þess má hér geta, að kornið var bezt við 200 kg saltpét-
ursskammtinn, en svo hrakaði útlili þess nokkuð, en þó var
kornið allgott og grómagn sæmilegt eftir stærsta saltpéturs-
skammtinn. Tilraun þessi sýnir enn fremur, að bygg borgar
fullt eins vel og stundum mun betur þennan áburð en túnrækt.
Það fæst fullt eins mikið fóðurgildi fyrir hver 100 kg af sall-
pétri í byggrækt sem túnrækt.
Áríðandi er við alla áburðarnoktun að dreifa jafnt á landið,
einkum á það við um kornyrkjuna, því að misjöfn dreifing
getur unnið meira tjón þar en t. d. í túnrækt.
Ef um blandaðan áburð er að ræða, má vel nota hann í stað
hinna einstöku tegunda. Er þá rétt að miða áburðarmagnið,
sem gcfið er, við köfnunarefnið, sem i lionum er. Vart er ráð-
Iegl að gela meira en 48 kg af köfnunarefni á ha til bygg- og
hafraræktar — eða 800 kg af ammophos (16 X 20%) — og
minna þar, sem það hentar. (Sjá töflu IV.) Þarf þá ekki að
bæta þenna blandaða áburð upp nema með kalíi, þar sein j)ess
væri þörf. Hið sama hiá segja um aðrar blandaðar áburðar-
legundir, t. d. nitrophoska, að bera þær á eftir köfnunarefnis-
innihaldi þeirra og bæta upp með öðrum tegundum, ef þurfa
Þykir.
Dreifingartimi áburðarins hefur nokkuð verið rannsakaður,
og er aðalniðurstaðan sú, að bezt er að bera allan áburð á til
kornræktar áðnr eða um leið og sáning kornsins fer fram.