Búfræðingurinn - 01.01.1944, Side 68
(56
B U F R Æ Ð I N G U R I N N
ha, eiga að koma úr henni 400 g af útsæði. Eftir þessu má svo
stilla vélina eftir því, hve mikið kemur úr henni við mismun-
andi stillingu.
Bezt er að vnlla 10—15 dögum eflir sáningu, en ekki strax
og sáð hefur Aærið. t’(i að innlendar tilraunir séu elcki lil um
þetta, þá hefur reynslan á Sámsstöðum l»ent til ]>ess, að oft
getur verið verra að valta strax efir sáningu. Getur það ol'L
orðið til þess að tálma spírun, auk ]>ess sem oft getur verið
lítt gerlegt að framkvæma völtun, um leið og sáð hefur verið.
Bezt er að nota léttan valta við akurvöltun.
■'t. Ilirðing kornakra.
Þegar 1 >liið er að ganga frá sáningu og völtun kornlendis,
])ai-f venjulega ekki sérstaka hirðingu um akurinn, og skiptir
hér mestu, í hvers lconar land hefur verið sáð. Á venjulegu
nýplægðu móalandi — og eins þótt það sé á 2. eða 3. ári frá
fyrstu plægingu — þarf ekki neinar aðgerðir til að halda ill-
gresi niðri, því að venjulega er akurinn að mestu laus við arfa.
En þó fer það eftir því, hvers konar áburður er notaður lianda
korninu. El’ búfjáráburður er notaður á 1. ári, verður nokkur
arfi árið eftir, en lítill eða engin arfi með tilbúnum áburði,
og alveg má rækta bygg og hafra til skiptis í 2—3 ár á sama
landi jfieð tilbúnum áburði, án þess að arfi Lefji sprettuna
neitt að ráði, nema um tún sé að ræða. En þá gerir arfi nokk-
uð vart við sig á 3. ári.
Ef korn er ræktað eftir kartöflur eða rófur, verður að tefja
fyrir illgresinu. Bezt er þá að herfa akurinn mcð lcttu lierfi
(illgresisherfi), rétt áður en kemur upp, og eins nokkru eftir,
ef þörf gerist. Verður þetta að gerast með varkárni, því að
herfing tvisvar eða þrisvar yfir vorið getur jafnhliða og hún
tefur illgresið líka tafið sprettu kornsins og alltaf eyðilagt
eitthvað af plöntum. Ef korninu befur verið j-aðsáð, er bezt
að herfa eftir kornröðunum. Skemmist ])á minna af korn-
plöntum. Aftur er erfiðara við að eiga á dreifsánum akri, og
verður þar að gæta meiri varkárni í notkun herfisins bæði
fyrir og eftir, að komið er upp. Það er og hægt að draga úr
illgresi með því að úða akurlendið með ýms.um lyfjum, \%
hrennisteinssýru eða járnvitroli, en það er fyrirhafnarsöm og
dýr ráðstöfun og dregur heldur úr sprettu kornsins, um leið