Búfræðingurinn - 01.01.1944, Qupperneq 80
78
B Ú F R ÆBINGURINN____________________________
Við tilhögun og framkvæmd sáðskiptaræktar hér á landi ber að fara
að nokkru eftir því, sem að framan liefu'r verið sagt, og svo þvi
að velja sem jöfnust skilyrði fyrir þá sáðskiptaumferð, sem fram-
kvæma á.
Bezt er að framkvæma sáðskiptið á þurrlendum móajarðvegi,
og gott er, að hann sé eitthvað sandblandinn, hafi góð halla- og
skjólsskilyrði, jninnig að kornrækt og garðrækt geti gengið jöfn-
um höndum á öllu þvi landi, scm sáðskiptinu er æílað að fara yfir.
Þetta er miðað við að hafa garðjurtir i skiptum við korn og tún,
en vel má hafa á sama bæ sáðskipti á korn- og grænfóðurbelg-
jurturn án garðjurta og hafa af þvi góð not, einkum þar, sem
skilyrði fyrir kartöflur eru það þröng, að þær verði að rækta við
takmörkuð skilyrði, hvað landrými snertir, t. d. i skjóli við bygg-
ingar eða önnur skjólsskilyrði, sem lítið land fylgir. Sáðskiptatil-
raunnm íslenzkum er skammt komið enn þá, og er þvi ekki á öðru
að byggja en þeirri reynslu, sem fengizt hefur við akuryrkjuna á
Sámsstöðum, og verður það, sem ég segi hér um tilhögun sáð-
skiptis, aðallega á þeirri reynslu og athugunum l)yggt. Þar, sem
eru góð rækunarskilyrði og t. d. kartöflur geta vaxið í öllu sæmi-
legu árferði víðast á betra landi hverrar jarðar, er eftirfarandi
sáðskipti mjög hagkvæmt:
1. ár hafrar (á nýplægðu túnlandi).
2. — garðjurtir, þar á meðal kartofiur (eftir hafra).
3. — hafrar eða bygg (eftir kartöflur).
4. — belgjurtagrænfóður (eftir hafra).
5. — bygg (eftir belgjurtagrænfóður).
(i. —• sáð til túns Vi sáðmagn bygg, slegið grænt í vothey siðast
í júlí.
7.—10. ár tún, rauðsmáragraslendi.
Ef hvert skipti er 1 ha, þarf á meðalfrjóa jörð eftirfarandi áburð
og áburðarmagn:
1. skipti 100 kg kalí, 200 kg superfosfat, 200—250 kg saltpétur.
2. — 40 tonn haug, 300—400 kg nitrophoska.
3. — 100 kg superfosfat.
4. — 150 kg kalí, 250—300 kg superfosfat.
5. — 100 kg kalí 200 kg superfosfat og 100 kg saltpélur.
0. — 50 tonn búfjáráburð.
7. — 200 kg nitrophoska.
8. —• 300 — --
9. -- 350 — —
10. — 350 — -
Við smáratúnræktina þarf að hafa 30 kg grasfræs á ha og af þvi
magni 40% rauðsmára. Með minni áburði en hér er gert ráð fyrir