Búfræðingurinn - 01.01.1944, Qupperneq 99
B U F R Æ Ð I N G lí R I N N
97
er að plægja niður 40—50 smálestir af búfjáráburði á ha. Árið cftir
sáningu fæst fræ, en ekki oftar, ]>vi að þær plöntur, sem bcra fræ,
deyja út. En næsta ár getur þó orðið nokkur frætekja af þvi fræi,
sem fellur niður við uppskeruvinnuna, en venjulega borgar sig ekki
að taka fræ af hásveifgrasinu nema 1 ár, þ. e. árið eftir sáningu.
Ef notaður er búfjáráburður sáðárið, það magn, sem að framan
er getið, þarf venjulega engan áburð fræárið. Fræstöngin er fremur
lin, og er gjarnt að leggjast, ef áburður er mikill. Er ]>ví sjaldan
rétt að gefa tilbúinn áburð fræárið, en ef borinn er áburður þá,
verður að gera það með varkárni, ekki meira en 100 kg af kalíi, 200
kg af súperfosfati, 100 kg af saltpétri á lia. Og fer þetta eftir þvi,
hvort landið er í góðri rækt áður. Hásveifgrasið sprettur mjög ört,
þegar fer að hlýna í veðri. Skríður venjulega seinni hlutann í júní
eða fyrst i júlí og bcr fullþroska fræ fyrstu dagana i ágúst. Upp-
skeran fer fram eins og uppskera annars grasfræs. Fræuppskera
getur orðið 300—350 kg af ha og hálmur 30 40 hestb. Hálmurinn
er dágóður til fóðurs og ézt af öllu búfé. Fræið er þristrent og ot't
þelhært við grunninn. Liturinn gráleitur, ofl i dekkra lagi. íslenzkt
fræ er heldur stærra en erlent verzlunarfræ og fræþýngdin 0,284 g,
jneðalt. 12 sýnishorna frá 4 árum. Meðaltalsgrómagn 80,3% og
mesta gróinagn 97%.
Frærækt af hásveifgrasi er tiltölulega auðveld vegna þess, hve.
snemma það þroskast, en vaka verður vel yfir því að slá frægrasið,
þegar það er á réttu þroskaskeiði —, ])egar fræ koma i höndina
við að strjúka puntinn upp. — Þreskingu er bezt að framkvæma
með venjulegri ])reskivél. Dálítið hefur reynzt erfitt að hreinsa fræið
vegna þess, hve fræin vilja loða sainan vegna þelháranna, sem eru
á þcim. En með góðri hreinsivél er þetta þó vel hægt, ef notuð eru
rétt sáld. Engir stofnar sérstakir eru til af hásvcifgrasi. Hér hefur
danskt fræ reynzt vel.
7. Mjúkfax.
Það má rækta til fræs á alls konar jarðvegi, og gefur það ágætt
fræ, sem spírar vel í öllum árum. Gefur fræ aðeins árið eftir sáningu
og deyr síðan. Þroskar venjulega fræ 4.—10. ágúst, og getur fræ-
uppskcra orðið allt að 1200 kg af ha, en þó oft ekki meiri en 800
900 kg. Bezt og auðveldast er að dreifsá fræinu i vel iborna jörð.
Áburðarmagn eins og fyrir hásveifgras. Ef borið er á sama magn og
fyrir liásveifgras sáðárið, þarf engan annaiv áburð árið eftir til
fræþroskunarinnar. Ef notaður er einungis tilbúiun áburður, er
hæfilegt að nota um 350 kg af nitrophoska sáðárið, en árið eftir 150
kg af kalii, 300 kg af súperfosfati og 200 kg af saltpétri, þýzkaii
eða annan tilsvarandi köfnunarefnisáburð. Hálmuppskera gctur ofl
7