Búfræðingurinn - 01.01.1944, Side 103
Helztu sjúkdómar í íslenzkum búpeningi.
Agrip eftir Ásgeir Þ. Ólafsson, dýralækni í líorgarnesi.
Síðan 192!) hef ég á hverjum vetri haft nokkra tíma með
nemendum í eldri deild Bændasltólans á Hvanneyri. í þessum
tímum hefur verið farið yfir það helzta, er varðar sjúkdóma
í íslenzkum búpeningi. Þar sem tímarnir hafa verið fáir, hefur
aðeins verið stiklað á því stærsta og ekki verið unnt að sinna
óllu, sem til greina gæti komið. — Guðmundur Jónsson, kenn-
ari á Hvanneyri og ritstjóri „Búfræðings“, hefur farið þess
á leil við mig, að ég ritaði fyrir Búfræðinginn ágrip um helztu
sjúkdóma í íslenzku búfé. Hef ég verið fremur tregur að verða
við þessuin tilmælum Guðmundar, og veldur því aðallega
tvennt: Nú sem stendur er ekki völ á þeim hókakosti, sem
æskilegur væri til þess að gera verkefninu góð skil, og í ann-
an stað hef ég ekki nægan tíma lil þess að sinna þessu sem
skyldi. Vil ég því hiðja þá, sem lesa kynnu þetta ágrip, gð
virða á lietri veg, en áskil mér rétt til að 'bæta um seinna, ef
lækifæri gefast.
I. KAFLI
Hér fer á eftir ágrip um helztu sjúkdóma í nautpeningi, og
koma þar einkuiu til greina sjúkdómar mjólkurkúnna.
1. Júgurbólga (Mastitis).
Júgurbólga er algengur sjúkdómur í mjólkurkúm og veld-
ur nokkru fjárhagslegu tjóni árlega. Mest ber á júgurbólg-
unni í beztu nautgriparæktarhéruðunum, þar sem mjólkur-
markaður er góður og áherzla lögð á það að liafa nytháar kýr.
Því meiri kröfur sem gerðar eru til kýrjúgursins um mjólkur-
myndun, þeim mun viðkvæmara verður það fyrir öllum
skaðlegum áhrifum.
Venjulega er talað um 2 tegundir júgurhólgu: bandvefs-
bólgu og kirtilvefsbólgu. Stálmi eða bjúgur sá, sem oft kemur