Búfræðingurinn - 01.01.1944, Síða 116
114
B Ú F R Æ í) I N G U R I N N
5. „Kroniskur doði“ (Acetonurie).
Þeir, seni bezt deili vita á þessum sjúkdómi, telja, að nafnið
„kroniskur doði“ sé rangnefni, þar sem sjúkdómur þessi sé af
allt öðrum rótum runninn en doði. Sennilega stafar nafnið af
J>ví, að sjúkdómur Joessi minnir stundum á doða og læknast
stundum á saina hátt og doði, eða með loftinndælingu. En
sjiikdómurinn er talinn stafa af efnaskiptatruflunum í líkain-
anum. Líkaminn brennir ekki kolvetnunum á eðlilegan hátt,
en á hinn bóginn á sér stað ofbrennsla á fitu og eggjahvítuefn-
um með aukinni Acetonmyndun. Oft finnst einkennileg lykt af
mjólkinni og fram úr kúnni, sem stafar af aulcnu acetoni, en
öruggast er að ákveða hina auknu acetonmyndun ineð þvag-
rannsókn.
Einkenni: Aðallega eru það góðar mjólkurkýr, vel fóðraðar,
sem fá þennan sjúkdóm, og sýkjast þær 1—(5 vikum frá burði.
Virðist sjúkdómur Jiessi aðallega koma fyrir í sambandi við
mikla kjarnfóðurgjöf. Fyrst ber á lystarleysi, sem smáágerist.
Fóðurlystin er oft breytileg og óeðlileg, þannig að kýrin étur
fremur lélegt hey og rudda en gott hey. Kýrin verður strengd
og svangarnir innfallnir, kýrin geldist. Áberandi er, hve ört
sjúltlingurinn horast. Hægðatregða fylgir, og er saurinn dökk-
grænn, gljáandi með slímlagi, — sjaldan niðurgangur. Oft er
sjúklingurinn mjög daufur, hreyfir sig Hlið, slendur með
Iiangandi höfði og er eins og í hálfgerðu móki og á erfitt með
að standa upp (minnir að Jiessu levti á doða). Likamshitinn
ekki aukinn. Æðaslög tið og stundum óregluleg. Auk Jiess ber
stundum á löngun lijá þessum sjiiklingum lil Jiess að sleikja
ýmsa hluti, t. d. milligerðir, veggi o. fl. Að lokum má minnast
aftur á hina einkennilegu (aceton)-lykt, sem oft er greinileg
með þessuin sjúkdómi.
Lækning: Öruggasta ráðið til Jiess að lækna þennan sjúk-
dóm er talið vera að sprauta drúfusykursupplausn inn í blóðið
(hálsæð) eða blöndu af kalsíumklórídupþlausn og drúfusyk-
ursupplausn. Verður ekki farið nánar út i það liér, þar eð
gripaeigendur geta ekki tileinkað sér Jiessa aðferð almennt. En
sjúkdómur Jiessi er einnig oft læknaður á þann hátt, að kýrnar
eru dældar með doðadælu á sama hátt og við doða, en jafn-
framt er nauðsynlegt að gefa þeim stóra skammta af sódadufti
(Natr. bicarhon.), 400—500 g á einum sólarhring, og er þriðj-