Búfræðingurinn - 01.01.1944, Page 120
Eyðing arfans.
Eftir ÓLAi' Jónsson, franikvæmdarstjóra.
Arfinn er sífellt á dagskrá. Ýmislegl er reynt lil að linekkja
lionum, en árangurinn er misjafn. í grasræktinni er arfinn
oftast viðráðanlegur, þó getur hann verið slænnir fyrstu árin
eftir grasfræsáningu, ef iengi hefur verið forræktað. í garð-
ræktinni þarf stöðugt að halda vörð, eigi arfinn ekki að vaða
uppi og valda stórtjóni.
Það er og hefur vafalaust verið drauxnur margra garð-
yrkjumanna að komast yfir eitthvert það vopn eða efni, er
nota mætti fyrirhafnarlítið lil að steindrepa arfann, án ]>ess
að nytjajurtirnar sakaði, en slikt er ekki auðfundið.
Við öllu eru þö nokkur ráð, og sé rétl með farið, má ofl
með litlum tilkostnaði hnekkja yfirgangi arfans verulega,
einkuin i kartöflugörðum.. Vil ég leggja fram nokkur gögn
jiessu til staðfestingar, sem þó enn þá eru færri en ég hefði
kosið.
Frá því að kartöflur eru settar niður á vorin og þar lil er
Jiær koma upp, líða venjulega um ö vikur. A Jiessu timabili
spírar inikið af arfafræi, og myndast urmull af örsmáum arfa-
jilöntum í görðunum, en þeiin er auðvelt að eyða með tvennu
móti.
Önnur aðferðin er að herfa garðana tvisvar, áður en kart-
öflurnar koma upp, með léttu herfi, — illgresisherfi —, sem
einn hestur dregur, eða með hliðstæðum handverkfærum.
Hin aðferðin er að dreifa tröllamjöli gfir garðinn skömmn
áður en kartöflurnar koma upp.
Báðar þessar aðferðir eru háðar vissum skilyrðum. Sé herf-
að, þarf yfirborð garðsins að vera vel myldið, þvurt og sólskin
eSa vindþurrkur fyrstu klukkustundirnar eftir, að herfað hefur
verið. Tröllamjöli er hezt að dreifa i logni yfir rakan garðinn
eftir dögg eða regn, en veður Jiarf að vera þurrt í 2-—3 sólar-
hringa, eftir að Jivi hefur verið dreift.